Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1990, Blaðsíða 26

Náttúrufræðingurinn - 1990, Blaðsíða 26
arhitinn fyrir sama tímabil var —1,3°C á Húsavík og —4,2°C í Reykjahlíð. Meðalársúrkoma var 531 mm á Húsa- vík og 353 mm í Reykjahlíð (Jón Ey- þórsson og Hlynur Sigtryggsson 1971). AÐFERÐIR Hugtakið fálkasetur (= fálkaóðal) er hér notað yfir það svæði sem fálka- hjón verja fyrir öðrum fálkum, yfir- leitt er þetta hreiðurkletturinn og næsta nágrenni hans. Á hverju fálka- setri eru alltaf nokkur hreiðurstæði, sem parið notar til skiptis. Þessi hreið- urstæði geta verið í mismunandi klett- um, en á sama tíma er aldrei nema eitt par búsett á hverju óðali. Fálkar sýna mikla átthagatryggð og nota sama óðal kynslóð eftir kynslóð líkt og margir aðrir ránfuglar (Newton 1979). Vitað er um rúmlega 80 fálkasetur á athuganasvæðinu. Með aukinni gagna- söfnun um ábúð einstakra setra, hefur þessi tala breyst lítillega á síðustu ár- um og er núna 83 setur. Eg hef heim- sótt 73-78 þessara setra árlega um varptímann til að telja fálka. Sumrin 1981-84 gerði ég tilraunir til að veiða fullorðna fálka við fáein set- ur. Mun meira var reynt að veiða 1985, 1987 og 1988. Engar veiðar voru reyndar 1986 og 1989-90. Veitt var á varptíma og fuglarnir náðust í næsta nágrenni hreiðurs. Sjálf veiðiaðferðin er trúnaðarmál og verður ekki útlistuð hér nánar. Fálkarnir voru vigtaðir og merktir áður en þeim var sleppt. Auk þess merkti ég flesta unga þessara kvenfugla. Ungarnir voru aldurs- greindir með beinum athugunum á varpi eða klaki, eða óbeint með því að miða við lengd á miðfjöður stéls (óbirt gögn ÓKN). Varptími fyrsta eggs var bakreiknaður miðað við þess- ar tölur um aldur unga (sbr. Ólafur K. Nielsen 1986 bls. 11). NIÐURSTÖÐUR OG UMRÆÐA Árangur veiða Samtals náðust 37 fullorðnir fálk- ar, þar af náðist einn 1981, 1983 og 1984, þrír 1982, sjö 1985 og 1988 og 17 fuglar 1987. Af þessum fuglum voru 31 kvenfugl og 6 karlfuglar, þar af náðust tveir kvenfuglar tvisvar, tveir kven- fuglar þrisvar og einn kvenfugl fjórum sinnum. Þetta gera því 28 einstakl- inga, 22 kvenfugla og 6 karlfugla. Kvenfuglarnir voru á 20 óðulum. Allir karlfuglarnir nema einn áttu maka sem náðist líka. Fjórir þessara fálka, tveir kvenfuglar og tveir karlfuglar, höfðu verið merktir sem ungar í hreiðri. Þegar þetta er ritað (desem- ber 1990) hefur einn af þessum 28 fuglum fundist dauður. Pyngd fullorðinna fálka Kvenfugl fálka er mun stærri en karlfuglinn. Meðalþyngd 28 kvenfugla var 1830 g (staðalfrávik 102,7, dreifing 1675-2020 g) en 5 karlfugla 1355 g (staðalfrávik 53,4, dreifing 1300-1450 g). Stærðarmunur kynja er vel þekkt- ur innan ættbálks fálka (Falconifor- mes) og hauka (Accipitriformes), og þyngd kvenfugla er auk þess mjög breytileg á varptíma. Kerlingin þyng- ist fyrir varp, er þyngst um það bil sem hún er að verpa og að hefja álegu, en léttist síðan. Karlinn sér einn um fæðuöflun á þessum tíma og þyngd hans breytist lítið (sjá t.d. Newton 1979, 1985, Poole 1989). Flestar kerlingar sem ég náði höfðu legið á í 3-5 vikur. Þrjár kerlingar frá ungatíma (1675-1725 g) og ein sem náðist 7 vikum fyrir varp (1750 g) voru áberandi léttar samanborið við kven- fugla frá fyrri hluta álegutíma (1. mynd). 136
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.