Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1990, Side 27

Náttúrufræðingurinn - 1990, Side 27
2,0- JZ O) *Q) 5 O) "O O) c >, n —i-----------1-----------1----------1----------r- 20 40 60 Dagar frá því fyrsta eggi var orpið Days from initiation of laying 1. mynd. Þyngd fálka á varptíma. Á myndina vantar kvenfugl sem náðist 7 vikum fyrir varp og var 1750 g. Ferningar tákna kvenfugla og hringir karlfugla. Weight of Gyrfalcons captured during study in relation to stage of the breeding cycle. Not shown is a female caught 7 weeks before laying and weighing 1750 g. Squares are females and filled rings males. Kynþroski og átthagatryggð unga Tveir karlfuglar merktir sem ungar náðust við hreiður. Báðir voru fjög- urra ára og komu upp ungum það ár. Annað óðalið hafði verið setið af geldpari tvö ár á undan, en þar áður hafði það verið í eyði. Hitt óðalið hafði verið setið af varppari árið á undan, þar á undan af geldpari og síð- an varppari. Mögulega hefur þetta því ekki verið fyrsta varp hjá síðari karl- fuglinum. Þessi karlfugl (2. mynd) var paraður ómerktum kvenfugli sem einnig náðist og samkvæmt lit var eins árs (3. mynd). Ég hef athugað um 250 fálkahreiður á Norðausturlandi síðan 1981 og þetta er í annað skipti sem ég hef séð ungan kvenfugl við hreiður. Tveir kvenfuglar merktir sem ungar náðust. Annar kvenfuglinn var tveggja ára og hinn þriggja ára, ungar komust upp hjá báðum það sumar. Tveggja ára fuglinn var á óðali, sem árið á undan var setið af geldpari, og þriggja ára fuglinn var á óðali, sem setið var af varppari árið á undan, en árin þar á undan hafði það verið í eyði (4. mynd). Síðari kvenfuglinn hefur því mögulega verið að verpa í annað skipti á þessu óðali. Þetta eru einu ör- uggu upplýsingarnar sem til eru um kynþroskaaldur villtra fugla. Dement- 137

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.