Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1990, Síða 29

Náttúrufræðingurinn - 1990, Síða 29
3. mynd. Fálkakvenfugl (113485) í ungabúningi (ársgamall) sem náðist við hreiður 1987. A female Gyrfalcon in juvenile plumage (one year old) caught at an active nest in 1987. Ljósm. photo ÓKN 1987. er hann náðist við hreiður 1984 og kom þá upp ungum, árið eftir hafði hann verið leystur af hólmi. Athuganir á Norðausturlandi hafa sýnt að fullorðnir fálkar, bæði kyn, eru árið um kring á sínu óðali (Ólafur K. Nielsen og Tom J. Cade 1990a). Þetta á jafnt við um fálka sem búa við ströndina þar sem alltaf er veiðivon og þá sem búa inn til landsins þar sem fátt annað er að hafa yfir veturinn en rjúpur (Lagopus mutus), snjótittlinga (Plectrophenax nivalis) og hagamýs (Apodemus sylvaticus) (Ólafur K. Nielsen og Tom J. Cade 1990b). Vet- urseta á óðali hefur þann megintil- gang að tryggja eignarrétt á því. Góð óðul virðast vera af skornum skammti og ég hef oft orðið vitni að átökum fálka við hreiðurklettinn. Menn hafa almennt talið að sömu fáikar héldu tryggð við sömu setur ár eftir ár (sjá t.d. Palmer 1988), en þetta hefur ekki áður verið staðfest með merktum fuglum. ÞAKKIR Fálkarannsóknirnar voru styrktar af Nat- ional Geographic Society, Vísindasjóði, Peregrine Fund Inc., Andrew Mellon Foundation, E. Alexander Bergstrom Memorial Research Fund og Arctic Insti- tute of North America. Náttúruverndar- ráð veitti aðstöðu í rannsóknastöðinni við Mývatn. Náttúrufræðistofnun íslands, dýrafræðideild, útvegaði merki og sá um allar endurheimtur. Menntamálaráðuneyt- ið veitti heimild til að veiða og merkja fálka. Richard Mearns og Jim Weaver 139

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.