Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1990, Qupperneq 42

Náttúrufræðingurinn - 1990, Qupperneq 42
persónulegar upplýsingar), en lítið var um tóma maga, sem fylgja myndi lág- ur styrkur þríglyceríða í blóði. Styrkur tveggja hormóna, sem bæði eru framleidd í berki nýrnahettanna, kortisóls og aldósteróns, var mældur í blóði langreyðanna. Ahuginn á aldó- steróni var aðallega bundinn við hlut- verk þess í stjórnun á natríum- og kalíumútskilnaði nýrna og samaburð á blóðstyrk þess í hvölum og í spendýr- um á landi. Talið var hugsanlegt að blóðstyrkur hormónsins í hvölunum væri eitthvað breyttur vegna öðruvísi saltbúskapar þeirrra. Styrkur aldó- steróns reyndist vera hærri í hvölum en mönnum (ef gildi fyrir liggjandi menn eru notuð til viðmiðunar fyrir hvalina, sem hlýtur að teljast eðlileg viðmiðun) og gæti það þýtt, að það hafi hlutverk við stýringu á saltstyrk í líkamsvökvum hvala, enda þótt ekki hafi fundist fylgni milli styrks þess og styrks natríums í blóði hvalanna. Kortisól er streituhormón að hluta, þ.e.a.s. styrkur þess hækkar í blóði við ýmislegt álag (áreynslu; áhyggjur) í mönnum og flestum öðrum spendýr- um, sem lifa á landi. Þannig hafa menn t.d. fundið að hreindýr, sem skotin voru á færi þar sem þau voru á beit, höfðu mun lægri kortisólgildi en þau dýr, sem höfðu verið elt eða rekin í sláturhús (Rehbinder, C. and Edqu- ist, L-E. 1981). Kortisólgildin í blóði hvalanna reyndust vera um 15 sinnum lægri en í mönnum, og um tvisvar sinnum lægri en í húsdýrum (Wilkin- son, J. 1980), en nokkru hærri en í framangreindum hreindýrum skotnum á færi. Þessi mikli munur milli dýra og manna getur þýtt það, að kortisól gegni ekki sama hlutverki í mönnum og dýrum. En ef hreindýr og hvalir eru borin saman, virðist sem hreindýr- in svari áreitinu meir en hvalirnir. Eins og að framan getur, sveiflast kortisólstyrkur í blóði manna yfir sól- arhringinn. Styrkurinn að morgni dags er um tvisvar sinnum hærri en að kvöldi. Þetta tengist svefntíma og ef hann breytist, breytist einnig kortisól- sveiflan. Við könnuðum hvort nokkur breyting væri á kortisólstyrk eftir því hvenær dags hvalurinn var veiddur og fundum engar slíkar tilhneigingar. Nú eru einnig til heimildir um dagsveiflu kortisóls hjá dýrum, og styður þessi niðurstaða það, sem nefnt var hér að framan viðvíkjandi könnun á þríglyc- eríðstyrk á mismunandi tímum sólar- hringsins, að hvalirnir virðast ekki sofa á ákveðnum tímum sólarhrings- ins, ef þeir sofa nokkuð yfirleitt. Styrkur natríums og klóríðs í þvagi hvalanna reyndist vera um 50% hærri en meðalstyrkur í þvagi manna, en var lægri en meðalstyrkur (selta) sjáv- ar. Hins vegar var styrkur kalíums og þvagefnis svipaður. Bendir þetta til þess, að hvalirnir þurfi að losa sig við meira saltmagn (NaCl) með þvagi heldur en spendýr á landi. Sýrustig og osmósuþrýstingur var heldur hærri í þvagi hvala en manna, en hafa verður í huga að þvagið var tekið úr blöðru hvalanna í hvalveiðistöðinni allmörg- um (10-20) klukkustundum eftir að dýrin voru skotin. Ekki er mögulegt að gera sér grein fyrir heildarútskilnaði efna í þvagi hvalanna, þar -eð ekkert er vitað um þvagmagn það, sem dýrin láta frá sér yfir sólarhringinn. Ef þess er gætt hversu þvagblaðra dýranna er lítil miðað við stærð þeirra, mætti giska á að heildarþvagmagn væri ekki mikið. Þetta þarf þó ekki að vera gild rök- semd, þar sem blaðran gæti allt eins verið svona lítil vegna þess að dýrin þurfa ekki að halda þvagi um lengri tíma. 152

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.