Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1990, Side 53

Náttúrufræðingurinn - 1990, Side 53
Oddur Sigurðsson Ritfregn Hydrology of Ice Caps in Volcanic Regions eftir Helga Björnsson Undir jól 1988 kom út hjá Vísinda- félagi íslendinga doktorsritgerð Helga Björnssonar um vatnafræði hveljökla á eldfjallasvæðum. Hún er á ensku með íslenskum útdrætti og ber heitið Hydrology of Ice Caps in Volcanic Regions. Með þessari ritgerð bætir Helgi merkum kafla við framlag ís- lendinga til jöklafræðinnar, en það framlag hófst með fornritunum. Á miðöldum var mestan fróðleik um jökla að finna hjá íslendingum enda höfðu þeir meir af jöklum að segja heldur en flestar aðrar þjóðir. Saxi fróði hefur um aldamótin 1200 trúlega haft sína þekkingu um jökla frá íslendingum og örugglega einnig höfundur Konungsskuggsjár hálfri öld síðar. Þá hefur Ásgrímur Brandsson ábóti, höfundur Guðmundar sögu biskups hinnar yngstu, einnig vitað sitt hvað um eðli jökla, en hún var rit- uð um miðja 14. öld. Héðan var síðan miðlað rituðum upplýsingum um jökla til annarra þjóða svo sem með Is- landslýsingu Odds Einarssonar, Is- landskorti Guðbrands biskups og jöklariti Þórðar Vídalín, þótt hægt hafi gengið með útgáfu á þeim sum- um. Með Sveini Pálssyni landlækni rísa jöklarannsóknir íslendinga á fyrri öld- um hæst. Kort Björns Gunnlaugsson- ar og Þorvalds Thoroddsen bæta tals- verðu við þekkingu á íslenskum jökl- um, en ekki svo miklu við jöklafræði almennt. Á síðustu öld og fram á þessa leggja ýmsir útlendingar í jöklaleiðangra hér á landi og afla margvíslegra gagna um hvernig þar er umhorfs. Má segja, að það hafi verið hefðbundin landkönn- un, sem margir fróðsleiksfúsir menn og ofurhugar lögðu í um þær mundir. Skipulegar mælingar á jöklum hér- lendis hefjast varla fyrr en Jón heitinn Eyþórsson veðurfræðingur kom skikk á mælingar á jökulsporðum víðs vegar um land um 1930. Nokkru síðar hófust margvíslegar jöklarannsóknir Sigurðar Þórarinssonar, oft í samstarfi við Svía. Næst bættust við reglulegar mælingar Vatnamælinga á rennsli jökuláa á fimmta áratugnum. Jöklarannsókna- félag Islands var stofnað 1950, og stóð það m.a. fyrir árlegum ferðum í Grímsvötn, þar sem sitt hvað var at- hugað í hverri ferð, svo sem yfirborðs- hæð í vötnunum og ákoma vetrarins. Oftar áttu íslenskir jöklafræðingar Náttúrufræðingurinn 60 (3), bls. 163-168, 1991. 163

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.