Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1990, Qupperneq 58

Náttúrufræðingurinn - 1990, Qupperneq 58
an 205 x 106 m3 og jafndreifð á 168,8 km2 flöt er það 1210 mm meðalákoma og 1850 mm meðalleysing, og þá hefur þessi hluti jökulsins rýrnað um 640 mm vatns að meðaltali árið 1985-1986. Þetta er ekki óeðlilegur munur því eins og kort nr. 8 ber með sér þá er afar mikill munur á þessum tveim svæðum ofan til á jöklinum. Það er annars e.t.v. ofrausn að vera með 2 aukastafi í rúmmálstölum í þessum töflum en nákvæmnin er metin 5% samkvæmt neðanmálsgrein. Einstaka atriði má fetta fingur út í, án þess að þau skipti verulegu máli. Til dæmis væri snyrtilegra að jafna talnadálka í töflum hægra megin og láta kommuna í þeim standast á, en þess er ekki allstaðar gætt í bókinni. Nokkrar ritvillur og misræmi má benda á, sumt augljóst en annað leyn- ir á sér. I síðustu línu á bls. 3 vantar þriðja síðasta orðið, væntanlega „measurements“. I texta með mynd nr. 1.6 stendur „View to the west ....“, en á að vera „View to the north . . . .“. Neðarlega á bls. 59 er tvívegis vísað í mynd 4.1 þegar átt er við mynd 4.2. I haus á annarri hverri síðu eru kaflafyrirsagnir. Þær hafa farið á stjá í allmörgum tilvikum og brenglast og auk þess vantar „F“ í slíkan haus í heimildalistanum. Nokkrar ljósmyndir eru birtar í bókinni. Sumar þeirra hefði mátt lýsa nokkuð að skaðlausu. Textin með þeim hefði líka mátt vera allmiklu ít- arlegri, því þar er mikinn fróðleik að finna. Skaði er, að ekki skyldi finnast betra eintak en raun ber vitni af mynd Pálma Hannessonar á bls. 97. Það er áhyggjuefni að myndir Pálma og fleiri frá því fyrir stríð virðast vera að glat- ast og væri ástæða til þess að safna þeim sérstaklega og varðveita. Mynd- ir hefðu að ósekju mátt vera mun fleiri eins og t.d. af Grímsvötnum eftir hlaup, af Skeiðará í hlaupi, úr mæl- ingaleiðangri, af tækjum og svo mætti lengi telja. Þessi ritgerð er vissulega ekki hugsuð sem myndabók, en engu að síður má sjá af myndum ýmislegt, sem aldrei verður sagt í rituðu máli, og vel valdar myndir eru ekki lýtir á neinu riti. Mér hefur boðið í grun, og þykir staðfestast við lestur þessarar bókar, að Islendingar standi fremst meðal þjóða í þekkingu á jökulhlaupum, bæði fræðilega og af reynslu. Væri ástæða til að rækta þetta svið sérstak- lega og færa meira af þeim fróðleik fram erlendis. Kunnur jöklafræðingur sagði eitt sinn að örfáir eðlisfræðingar, sem aldrei hafi stigið fæti á jökul, hafi lagt meira fram til skilnings á jöklum held- ur en hundruð jöklafara, sem mældu afkomu og sporðabreytingar. Raunin er, að hvorugur kemst af einn síns liðs, og er mikil hætta á, að báðir lendi á villigötum hafi þeir ekki við störf hins að styðjast. í þessari bók eru tengdar saman mælingar og eðlis- fræðikenningar þar til kominn er heill vefur, sem getur staðið undir miklum frekari rannsóknum. Þessi bók er tvímælalaust verðugur fulltrúi í röð íslenskra jöklarita. Á hún fullt erindi til jöklamanna, lærðra sem leikra, hvar sem er í heiminum. Það hefur þurft mikla einurð og elju að mæla allt þetta flæmi og það við veð- urlag, sem er hvað óblíðast hér á jörð. í annan stað er mikið átak að koma öllum þessum gögnum á framfæri svo aðgengilega sem hér er gert. Því fer þó fjarri, að komið sé að því að setjast með hendur í skaut. Meira er eftir en þegar er unnið og á ég ekki aðra ósk betri til Helga og félaga hans en að þeim megi auðnast að mæla það sem eftir er af íslenskum jöklum í sömu veru. 168

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.