Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1993, Síða 23

Náttúrufræðingurinn - 1993, Síða 23
Þetta kann að hafa einhverja þýðingu en of snemmt er að fullyrða nokkuð um það. Þær staðreyndir að einnar eða tveggja amínósýra mismunur á PrP-prótínum í innæxluðum músastofnum hefur gífurleg áhrif á meðgöngutíma príonsjúkdóma í þeim, og að stök amínósýruskipti í Prn-p- geninu orsaka hugsanlega GSS og ættgengan CJD, gætu bent til þess að breyting á þrívíddarbyggingu prótínsins sé orsök breyttrar hegðunar þess. í stökum tilfellum CJD er hægt að hugsa sér að svipuð eða sams konar stökkbreyting hafi átt sér stað í frumulínu, stakri frumu, við eftirmyndun mRNA, eða jafnvel að mistök við þýðingu hafi komið ósköp- unum af stað. Riðuveiki í sauðfé virðist eins og CJD geta verið bæði arfgeng, smitandi og komið upp af sjálfu sér. Enn hafa ekki verið gerðar samanburðar- rannsóknir á Prn-p-genum í sauðfé en spennandi væri að vita hvort sams konar munur sést þar á milli missmitnæmra sauðfjárstofna. HUGSANLEG TENGSL VIÐ AÐRA SJÚKDÓMA Margir þeir sem rannsaka príonsjúk- dóma hafa einnig mikinn áhuga á öðrum hrörnunarsjúkdómum í miðtaugakerfi sem ekki eru smitandi en virðast stundum ættgengir. Sem dæmi má nefna Parkin- sonsveiki og Alzheimersjúkdóm. Einkenni þeirra minna að sumu leyti á CJD eða kúrú og oft má finna prótínútfellingar í heilum sjúklinga. Menn reyna því skiljanlega að finna einhver tengsl milli þessara sjúkdóma og príonsjúkdómanna en engar rannsóknaniðurstöður benda til þess að þeir eigi sér hliðstæðar skýringar. Ýmsir töldu sig á tímabili greina heilmikla samsvörun milli eyðni (AIDS) og CJD þegar þeir fundu einhvers konar prótínútfellingar í heilum látinna eyðni- sjúklinga. Ónefndir spekingar skýrðu meira að segja frá mikilli samsvörun milli amínósýruraðar PrP og HlV-polymerasa, þótt engin slík samsvörun sé til staðar. Bent hefur verið á hliðstæðu æxlisgena, sem valda krabbameini, og P/vi-genanna. Vissulega er það sameiginlegt með krabbameinum og príonsjúkdómum að hvort tveggja getur annaðhvort orðið til í líkama sjúklings eða borist þeim utanfrá. Að öðru leyti virðist fátt líkt með þessu tvennu, því æxlisgenin berast með vel skilgreindum ferjum (vektorum), veirum sem innihalda kjamsýru, en þrátt fyrir margra áratuga þrotlausar tilraunir hefur ekki tekist að bendla nokkra kjamsým við riðusmitefnið, aðra en /Vu-genin í eðli- legum frumum og eðlilegar mRNA- afurðir þeirra. LOKAORÐ Rannsóknum á príonsjúkdómum fleygir nú fram. Eftir að sameindaerfðafræðingar öðluðust næga þekkingu til að geta breytt genum lífvera á sértækan hátt og flytja erfðaefni á milli dýrategunda er hægt að svara ýmsum spumingum mun hraðar en áður. Þannig gera menn sér t.d. vonir um að enn megi herða á rannsóknunum með því að auka tjáningu á prn-p-geninu í músastofnum og fá með því stofna með rnjög stuttan meðgöngutíma. Þekkinguna sem nú er til staðar mætti ekki síður nota í hagnýtum tilgangi; t.d. virðist ékki út í hött að hægt væri að rækta upp riðuþolið kyn íslenskra sauðkinda. EFTIRMÁLI Forvera ritgerðar þessarar var skilað sem verkefni í námskeiði í veirufræði við Líffræðiskor Háskóla íslands, árið 1991. Ritgerðin ber þess eflaust enn merki að vera skrifuð fyrir menn lærða í erfðafræðum, en ég hef þó reynt að þýða hana á mannamál og sleppa því tyrfnasta af efninu. HEIMILDIR Björn Sigurðsson 1954. Rida, a chronic en- cephalitis of sheep: with general remarks on infections which develop slowly and 17
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.