Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 79
Tegundin sást fyrst á íslandi í lok
september 1953 en þá sáust tveir fuglar, í
Mývatnssveit og Laxárdal, sem e.t.v. hafa
borist samtímis til landsins. Um þriðja
fuglinn ríkir nokkur óvissa en talið er að
hann sé frá sumrinu 1963. Fjórði fuglinn
fannst dauður seint í október 1968 og sá
síðasti náðist um miðjan nóvember 1972.
Því virðist barrspætna helst að vænta hér
að haustlagi.
Spörfuglaœttbálkur (Passeriformes)
Spörfuglaættbálkur inniheldur fleiri
ættir og tegundir fugla en nokkur annar
ættbálkur. Til þess að gefa hugmynd um
stærð hans má nefna að Howard og
Moore (1991) telja 74 ættir til hans.
Næstur honum kemur strandfuglaættbálk-
ur (Charadriiformes) sem nær t.d. yfir
vaðfugla, máfa og svartfugla, með aðeins
16 ættir. Mikilvægi spörfugla í lífríkinu
er því augljóst. Þótt flestir þeirra séu smá-
vaxnir eru þeir yfirleitt mjög áberandi, þar
sem einstaklingafjöldinn getur verið mjög
mikill og fyrirferðin að sama skapi, en til
þessa ættbálks teljast flestir hinna eigin-
legu söngfugla. Þar sem ómögulegt er að
gefa frekari innsýn í þennan geðþekka
ættbálk nema í löngu máli verður látið
hér við sitja.
Ein ætt spörfugla verður þó hér til frek-
ari umræðu en það er greipaætt (Tyrann-
idae). Til ættarinnar teljast 375 tegundir
sem deilast á um 90 ættkvíslir. Þær er
allar að finna í Ameríku, einkum í hita-
beltinu. Þessir fuglar skipa svipaðan sess
í lífríki Ameríku og grípar (Muscicapidae)
í gamla heiminum, þó ekki sé um ýkja
náinn skyldleika að ræða. í N-Ameríku
verpur 31 tegund af greipaætt en mun
fleiri tegundir er að finna við vesturströnd-
ina en austurströndina (Peterson 1947,
1961). Staðfest er að ein þessara tegunda
hafi fundist í Evrópu en það er mýgreipur
(Empidonax virescens). Til þessa hefur
hann þó ekki náð austar en til íslands. Þó
er talið að tegundin Sayornis phoebe hafi
sést á Bretlandi vorið 1987 en það atvik
er enn til athugunar hjá bresku flækings-
fuglanefndinni (Lewington o.fl. 1991).
Mýgreipur (Empidonax virescens)
Mýgreipur (8. mynd) verpur í austan-
verðum Bandaríkjunum, frá Mexíkóflóa
norður að vötnunum stóru. Vetrar-
stöðvamar em í Mið-Ameríku og norðan-
verðri S-Ameríku (Peterson 1961).
Tegundin hefur aðeins einu sinni fundist
í Evrópu og það á íslandi:
1. Selfoss, Árn, 4. nóvember 1967 (karlf.? RM4063).
Einar Gunnarsson. Fannst nýdauður.
Um þennan áhugaverða fund á Selfossi
verður fátt annað sagt en að mýgreipur er
8. mynd. Mýgreipur er
amerískur spörfugl sem
hefur aðeins einu sinni
fundist austan Atlantsála
en það var á Islandi haust-
ið 1967. Acadian Fly-
catcher (Empidonax vire-
scens). Ljósm. photo J.S.
Dunning/Cornell Lab. of
Omithology.
73