Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1993, Síða 105

Náttúrufræðingurinn - 1993, Síða 105
Ámý E. Sveinbjömsdóttir Fomveðurfar lesið úr ískjömum INNGANGUR I þessari grein verður fjallað um hvem- ig hægt er að nota mælingar á samsætum (ísótópum) úr ískjömum til að rannsaka veðurfar á liðnum árþúsundum. Á allra síðustu árum hafa breytingar á loftslagi verið mjög í sviðsljósinu. Hugs- anleg áhrif manna á veðurfar vegna svo- kallaðra gróðurhúsaáhrifa, sem fyrst og fremst stafa af aukningu á koldíoxíði andrúmsloftsins, eru að sönnu mikið áhyggjuefni. En til að skilja þau áhrif sem mannskepnan og verk hennar hafa á loftslag jarðarkringlunnar er nauðsynlegt að þekkja þær náttúrulegu sveiflur sem hafa orðið á veðurfari í rás tímans og brjóta til mergjar orsakir þeirra. Eldgos og atburðir úti í geimnum eru helst nefndir sem orsakir hinna náttúrulegu sveiflna í veðri og þar með hita. Jörðin er talin vera um fimm þúsund milljón ára gömul og þekkt er að á hinum ýmsu jarðlífsöldum hefur loftslag verið afar breytilegt. Þannig hafa menn vitað lengi að síðasta ísöld hófst fyrir um tveimur milljónum ára og að henni lauk fyrir um 10.000 árum. Ennfremur hefur verið ljóst að á ísöld skiptust á hlýskeið og jökulskeið. Hin síðamefndu vöruðu í um 100.000 ár og einkenndusl af hel- kulda. Hlýskeiðin voru hins vegar mun skemmri og loftslag þeirra svipað því sem nú ríkir. Upp úr 1960 sýndi danskur vísinda- maður við Hafnarháskóla, prófessor Willi Dansgaard, fram á það að mjög náin fylgni er milli samsætustyrks í úrkomu og meðalhita á úrkomustað. Sigfús J. John- sen, sem nú er prófessor við Háskóla íslands, var um þær mundir að Ijúka námi í eðlisfræði undir handleiðslu prófessors- ins. Með þeim félögum tókst náin og lang- varandi samvinna. Eftir að Bandaríkja- mönnum tókst sumarið 1966, af mikilli hugvitssemi og e.t.v. enn meiri þolin- ntæði, að bora út fyrsta ískjarnann á Grænlandsjökli var þeim Sigfúsi og Dans- gaard boðið að mæla ískjamann. Mæl- ingamar leiddu í ljós að kjaminn fól í sér allar þekktar veðurfarssveiflur á síðustu árþúsundunt sem vitneskja var um frá öðmm rannsóknum. Hinn íslenski náms- maður varð síðar einn áhrifamesti vísinda- maðurinn við borframkvæmdir og túlkun gagna frá Grænlandsjökli og hefur stuðlað að því að við Raunvísindastofnun Há- skólans er nú ötullega unnið að rann- sóknum á fomveðurfari. Þessar frumathuganir leiddu í Ijós að hjamjöklar geyma í sér nákvæmar upp- lýsingar um veðurfar löngu liðins tíma. Með því að rannsaka breytingar á sam- sætustyrk íssins sem myndaðist íjöklinum er hægt að meta mjög nákvæmlega hvem- ig hitastigið hefur sveiflast á liðnum öldum. BAKGRUNNUR Vatn, og þar með ís, er gert úr tveimur frumefnum, þ.e. vetni og súrefni. Lang- algengasti atómmassi súrefnis er 16. En jafnframt er til örlítið af súrefni með Náttúrufræðingurinn 62 (1-2), bls. 99-108, 1993. 99
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.