Samvinnan - 01.01.1949, Page 17
un og Pólstjörnuna
Sú ratvísi hefur ekki brugð-
ist nú í þau 35 ár, sem eg hef
ferðast, hvort heldur v a r
blindþoka, náttmyrkur eða
hríðarveður.
nd Einarsson
Aiðdal
i
I
f
l’rir sleða. Þeir eru ratvisir og góðir ferðafélagar
sínar við ættarsetrið og telja sig geta
talað við fjarlæga ættingja um langar
leiðir — með hugskeytum. Þeir nota
einnig Pólstjörnuna. í elztu indoger-
mönskum fræðum eru gyðjur ástarinn-
ar og frjóseminnar duglegar að ferðast.
Þær ferðast í vögnum, dregnum af
köttum (ljónum) Freyja, hvítabjörn-
um Ardvisura, og dreka Marayana.
Staðsetning farartækjanna er Pólar-
stjarnan, öxull norðurhvelsins, eins og
afstöðumyndin, neðst t. v., sýnir:
1. er merki Freyju — stóri-björn eða
vagninn. Pólstjörnuna finnum við
með því að framlengja línu aftari hjóla
fimm sinnum.
2. Litli-björn — merki Ardvisura
(Persar).
3. Drekavagninn — merki Marayana
liinnar Indversku.
Pólstjarnan hefur verið leiðarmerki
norrænna manna, svo lengi sem sögur
greina. Margt bendir til þess, að rat-
vísi hafi verið fræðigrein mikil.
Vísdómur þessi hefur verið barinn
niður með ægilegri grimmd á Miðöld-
um, svo að nú eru aðeins örlítil brota-
brot við líði — villustafir og þulur til
að firra fólk villu, — fæstir skilja, hvað
orðið átthagar þýðir.
Mér er kunnugt um fólk hér á landi
og í Týról, sem enn hefur Pólstjörn-
una sem leiðarmerki, og veit hvar hún
er, án þess að sjá hana, og mér hefur
verið leiðbeint í þessum sökum í upp-
hafi.
MÉR HEFUR aldrei komið til hug
ar, að eg gæti villzt, sú vissa hef-
ur orðið mér dásamlegt öryggi og gleði
á ferðalögum. Eftir að eg lá í miklum
sótthita (í Spönsku veikinni 1918), þá
bilaði ratvísi mín lítilsháttar, atvik í
sambandi við þessi tilfelli sannfærðu
mig um, að tvœr miðanir eru nauðsyn-
legar til að halda átt.
Samkvæmt mínu kerfi: Pólstjarnan
og áfangastaðurinn. Hefur þó stjarnan
meiri þýðingu ef farið er um ókunnar
slóðir. Ávallt voru það smáatvik, eða
hreyfingar, sem urðu þess valdandi að
eg tapaði aldrei átt í svip.
Hið fyrsta skipti, er eg tapaði átt,
var á ferðalagi umhverfis Langjökul.
Við vorum þrír félagar með tvo áburð-
arhesta. Við Arnarvatn hið mikla töp-
uðum við hestunum í blindþoku, og
leituðum þeirra tveir félagar um Arn-
arvatnsheiði og vestur undir Tví-
dægru. Eg var öruggur með áttina, og
stefnuna á tjald okkar við Skammá, en
þar hafði þriðji félaginn orðið eftir. Á
lækjarbakka hugði eg að silungi og
sneri mér við og hljóp fram og til baka.
Þá skeði það, að eg gat ekki áttað mig,
jafnframt fann eg til mikillar vanlíð-
Vonarskarð séð af Bdrðarbungu á Vatnajökli. Þessa leið fór Gnúpa-Bárður til Suðurlands að vetrar-
lagi með búslóð sina.
17