Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1964, Page 49

Samvinnan - 01.12.1964, Page 49
SAMVINNUMENN STEFÁN BALDVINSSON Fæddur 9. janúar 1883 Dáinn 10. ágúst 1964 Stefán Baldvinsson, bóndi í Stakkahlíð í Loðmundarfirði andaðist 10. ágúst síðast- liðinn. Hann fæddist að Stakkahlíð 9. janúar 1883. Fyrir utan þeirra tíma bamafræðslu naut hann nokkurrar tilsagnar hjá séra Bimi Þor- lákssyni á Dvergasteini. Síðan lauk hann námi á Bændaskólanum að Hólum og var þá mjög handgenginn Sigurði Sigurðssyni skólastjóra, einkum við bréfaskriftir vegna undirbúnings að stofnun Ræktunarfélags Norðurlands. Síð- an vann hann við jarðabætur á vegum félags- ins og lagði hönd að plöntun hinna fyrstu trjáa í Gróðrarstöðinni á Akureyri. Þá fór hann til náms að lýðháskólanum í Askov í Danmörku og nam einnig a. m. k. einn vetur við Landbúnaðaiháskólann í Kaupmanna- höfn. Kennari var hann á Hvanneyri vetur- inn 1909 til 1910 en fluttist síðan austur að Stakkahlíð og hóf búskap, fyrst í félagi við föður sinn og síðan sjálfstætt. Hann var einn af aðalstofnendum Kaupfélags Austfjarða á Seyðisfirði og lengst af í stjórn þess og stjóm- arformaður í mörg ár. Hann átti sæti á að- alfundum SÍS sem fulltrúi. Stefán fómaði kaupfélaginu miklum tíma og kröftum og var samvinnumaður og hugsjónamaður af lífi og sál. Fyrir sveit sína gegndi hann flestum þeim trúnaðarstörfum, sem til fallast. Arið 1910 gekk hann að eiga eftirlifandi konu sína, Ólafíu Ólafsdóttur frá Bæ á Rauðasandi. Vegna stöðu sinnar sem hreppstjóri í Loð- mundarfirði, hafði Stefán Baldvinsson mikil og margvísleg afskipti af erlendum skipum, sem inn á fjörðinn komu, einkum norskum. Einkenndust þau afskipti af réttlæti, heiðar- leik og vinsemd. Vegna þeirra sendi norski ambassadorinn til útfarar Stefáns sérstakan fulltrúa sinn, sem lagði kranz að kistu hans og flutti þakkarávarp. P.H.J. við óskuðum bjarts og fagurs veðurs. Margra ósk var að geta orðið þeirra töfra aðnjótandi, er miðnætursólin mynntist við láð og lög, f jallagnípur og fagra dali Axarfjarðar, dalinn, sem breiðir faðminn mót nætursól og skammdegisnótt, máski mestri fegurð og grimmustu hríðum. Nú var norðan storm- ur og rigning. Þokan grúfði yf- ir svo skyggni var skammt. Ekið var um Tjörnes. Mun þar vera víðsýnt bæði til lands og hafs, — sjá til Grímseyjar í björtu. Er komið var að sýslumörk- um, mætti okkur flokkur Suð- ur-Þingeyinga, þeirra á meðal Hermóður bóndi og frú hans í Árnesi, en hann er formaður Búnaðarsambands S.Þ., og bauð til dagverðar í Laugaskóla í Reykjadal. Veðurfarið og naumur tími leyfðu ei dund né droll, og var því viðstöðu lítið rennt að Laugum. Var þar fyr- ir hópur heimamanna, kvenna og karla. Það er ávallt skemmtilegt að sitja veizlu með Þingeyingum. Þeir eru lífs- glaðir, létt um tungutakið og hagyrðingar góðir. Við, hinir eldri í hópnum söknuðum þess, að þeir Jón Þorbergsson á Laxamýri og Jón Sigurðsson á Yzta-Felli voru ekki þama staddir svo við gæt- um heilsað þeim, tekið í hend- ur þeirra, og minnzt góðra, gamalla kynna. Fyrir 50—60 árum lögðu þeir land undir fót um hávetur, hvernig sem veð- urfar og yfirferð voru. Jón Þorbergsson mun bafa komði á flesta bæi og farið í fjárhúsin, skoðað ær og p.rúta, og hvatt bændur til endurbóta á sauðfé sínu, og benti þeim á hvar endurbóta þyrfti, hvert fara skyldi til að fá kynbóta- kindur og hvaða hagfræðilega þýðingu það hefði fyrir bónd- ann að eiga afurðamikið fé, hraust og beitarþolið. Einnig var Jón vakinn á flestum sviðum sveitamenn- ingar, og hvatti bændur til fé- lagslegra framfara. Hann var einn þeirra aldamótamanna sem öllum góðum málum vildi leggja lið, og gjörði það. Jón Sigurðsson fór um sveit- ir landsins sem erindreki sam- vinnufélaganna. Mun erindi þau er hann flutti hafa orðið fyrsti vísir að stofnun kaup- félaga á ýmsum stöðum. Þess- ir menn voru aufúsugestir í þá daga, bæði í sínum aðaler- indum, og svo voru þeir vel menntaðir og fræðarar á fleiri sviðum. Þessir menn og þeirra líkir, skirrðust ekki við að klífa um heiðar og hálsa, fannbarðir, um ókunnar leiðir til að fræða og leiðbeina þeim er bjuggu í strjálbýlinu. Ég var svo heppinn, í það eina sinn er ég áður var á ferð um Aðaldal og Reykjadal, að þá var sól um allar sveitir og var þar fallegt. Með Laxá var yndislegt. Það er táknrænt, að fegurstu ár á landinu og um- hverfi þeirra skuli vera nærri höfuðstöðum landsins, Reykja- vík og Akureyri. Meðan dvalizt var á Laug- um í góðum fagnaði, var sem allar flóðgáttir himinsins hefðu verið opnaðar, regnið buldi á húsum og bifreiðum og lækir runnu eftir vegunum. Engin linkind hjá fararstjór- anum, góðir og skemmtilegir gestgjafar kvaddir, út í bílana og af stað. Það var fyrst er komið var í vesturhlíðar Vaðlaheiðar, að veður fór að batna, og er til Akureyrar kom sveif frá, svo til sólar sá gegnum þokuhjúpinn yfir Myrkárjökli. Var því von um sól með hallandi degi á Skagafirði. Viðstaða á Akureyri var eng- in, gátum aðeins séð hana í skyndi. Er fljótt séð, að þarna býr fólk sem ann fögrum gróðri, og kann að notfæra sér hann til skrauts og yndisauka. Landslagið er einnig í samræmi við það, hlýlegt og yndislegt. Fjöllin tigin og svipmikil en þó í hæfilegri fjarlægð. Við sýslumörkin mættu okk- ur Skagfirðingar. Sýslumaður þeirra, sem um árabil var ást- sælt yfirvald okkar Stranda- manna, Jón bóndi Jónsson á Hofi, sem er formaður Búnað- arsambands Skagfirðinga o. fl. Var okkur boðið til veizlu og mannfagnaðar í Héðinsminni að Ökrum. Nú skein sól um Skagafjörð og hugsuðu menn gott til kvöldsins undir skini kvöld- og miðnætursólar í hinum fagra sal Skagafjarðar. Leiðin um Giljareiti og Norð- SAMVINNAN 49

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.