Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1964, Side 51

Samvinnan - 01.12.1964, Side 51
, BflflGfl IBOLLA HVERJUM.. JflWI kirkjunnar og um staðinn og upplýsir og fræðir um helztu atriði sögunnar. Er öllum gott að njóta frásagnar og leiðbein- ingar séra Björns. Frá Hólum var ekið um Hegranes, til Sauðárkróks. Þar er nú höfuðstaður Skagfirð- inga. Þar sitja sýslumaður, prestur og læknir. Þar eru sjúkrahús, gagnfræðaskóli og fleiri menningarstofnanir hér- aðsbúa. Þangað liggja straum- ar fjármagnsins úr hafinu, í fiskiveiðum, og úr gagnauðug- um sveitum héraðsins. Er því af sýslungum og ferðamönn- um litið björtum augum á framtíð Króksins. Nær vega- mótum Norðurlandsbrautar og Sauðárkróksvegar er Varma- hlíð, nýnumið land, er gefur góð fyrirheit um glæsilega framtíð í byggð og menningu. Þar er nú þegar gistihús, skóli, sundlaug og gróðurhús. Þaðan er fagurt um að litast. Skyggnst var um í gamla bænum í Glaumbæ. Þar mættu eldra fólkinu gömul og geymd kynni. Kærar minningar vökn- uðu. Pabbi og mamma í öðr- um enda baðstofunnar, vinnu- fólkið á rúmum sínum. Áhöld- in sem unnið var með. Bað- stofan ómaði af söng og ljóð- um og sögnum. f Varmahlíð skildi farar- stjórinn, Ragnar Ásgeirsson, við okkur, fól okkur og heill okkar forsjóninni, en hélt til baka að fylgja N-Þingeyingum í för um Múlasýslurnar. Leiðin liggur með garði í Víðimýri. Þar er eitt af stór- býlum Skagafjarðar, aldin kirkja, byggð úr torfi. Þarna bjó um aldamótin 1200 höfð- ingi mikill, Kolbeinn Tumason, er lítt kunni að láta hlut sinn, er hann átti í deilum við sam- tíðarmenn sína. Hann var skáld, og er hann gekk á fund við milding himnanna, var hann auðmjúkur í trú og bæn. Fá orð á íslenzkri tungu um þetta efni munu fegurri en hans. Á Amarstapa stendur mynd Klettafjallaskáldsins, er knúði hörpu sína, en Gýgjar- foss tók undir. En í bílnum var sungið: Kveð ég fagra fjörðinn Skaga, farðu vel um alla daga; blessuð sé þín byggð og saga, bæir, kot og höfuðból! Heyr mig, göfgi, glaði lýður, gæt þess vel sem mest á ríður: meðan tíminn tæpi líður, trúðu þeim, er skapti sól! Þá skal sólin sælu og friðar, sú er löngu gekk til viðar, fegra byggðir fagrar yðar, fóðra gulli Tindastól. Ég minnist ykkar, ferðafé- lagar, með þakklæti. Farar- stjórans, Ragnars Ásgeirssonar, og félaga hans, Helga bónda Haraldssonar á Hrafnkelsstöð- um. Þeim var aldrei örðugt að halda hópnum í góðu skapi, enda ótæmandi sjóðir af fer- skeytlum, ljóðum, sögum og sögnum. Bílstjóranna verður ávallt minnzt. Þeir voru okk- ar forsjón. Þeirra vökula auga og styrku hönd voru fótmál okkar falin, og þeir brugðust ekki. Auk þess lögðu þeir sitt til að létta lundina. Mínum kæru sýslungum sendi ég kveðju. Mörgum þeirra hafði ég ekki kynnst fyrr. Með þessari för stækkaði vinahópur góðra drengja og kvenna. Guðbrandur Benediktsson, frá Broddanesi. Bréf til barnanna Framh. af bls. 35. Það getur verið, en skolli fer hann þá vel með það. Þegar ég kem úr skólanum fer ég*, strax að lesa. Mér finnst lang bezt að ljúka því af. Og þegar ég er búinn að lesa, förum við strákarnir stundum eitthvað út, ef veðrið er gott. Við er- um alltaf fjórir saman, Addi, Jonni, Gilli og ég. Það eru nú fínir strákar, skal ég segja ykkur. Brói kallar okkur „töff-gæjana“. Okkur er alveg sama. Við erum ekki meiri gæjar en aðrir. Það sem verst er, við höfum svo lítið við að vera úti. Hér eru þessar endalausu götur og gangstéttir og fólk og bílar, og svo gerist aldrei neitt. Einu sinni, það er dálitið síðan, vorum við svona aö ganga um göturnar og viss- Samhringing Framh. af bls. 25. ilunum og hinn ytri hjúpur þeirra breytist hrað- fara. Jólatrén urðu erlend og skrautið margfald- aðist. Jólagjafakapphlaupið tók á sig stórfeng- legri myndir með hverju árinu, sem leið — og Mammon glotti bak við hvern ðúðarglugga, og er nú jafnvel farinn að bjóða upp á mánaðar- eða sex vikna jól. — Við þá þróun ræður enginn. En eitt helzt óbreytt — eitt er œtíð eins — stórt, sterkt, fagurt, heillandi og heilagt — hinn kliðmikli, þungi samhljómur klukknanna frá kirkjunni í dalnum — þorpinu eða borginni. Samhringingin klukkan sex þennan eina dag ársins — á aðfangadagskvöld. Undir þeim sam- hljómi og þunga hins volduga kalls verðum við öll gott fólk, góðir menn, góðar konur, góð börn — getum ekki annað. Svo mikið er vald þess kalls. Verði svo enn um aldir. Pétur Sigfússon frá Halldórsstöðum. SAMVINNAN 51

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.