Samvinnan - 01.02.1970, Blaðsíða 64
Hettupeysa.
Stœrö — 9—12 mánaða.
Efni = Hjerte Crepe eða Combicrepe eða annað mjúkt
fremur gróft prjónagarn, 4—5 hnotur (miðað við 50 g
hnotur). Prjónar nr. 3 og 3 (4-
Ath. uppskriftin er miðuð við að 32 1 mælist 10 sm. Prjón-
ið því litla munsturprufu og mælið áður en byrjað er á
peysunni. Lykkjufj öldinn á að vera deilanlegur með 4+2 1.
X — afmörkun á munstrinu.
Stytting á nöfnum: 1 = lykkja, sl = slétt, br = brugðin.
1. prj. 1 sl X 2 sl, takið 1 1 fram af með garnið aftan við
lykkjuna, 1 sl X endurtakið frá X—X og endið með 1 sl.
2. prj. 1 sl, prjónið síðan brugðið, takið lausu lykkjuna
fram af með garnið framan við lykkjuna og endið með 1 sl.
3. prj. 1 sl X. Krossið lausu lykkjuna til hægri þannig:
Prjónið eina slétta í lausu lykkjuna, en látið hana vera
kyrra á vinstra prjóni, prjónið næstu lykkju á venjulegan
hátt sl, og aðra lykkju en lyftið lausu lykkjunni af um leið,
1 sl X endurtakið frá X—X, prjóninn út og endið með 1 sl.
4. prj. 1 sl, prjónið síðan brugðið umf. út og endið á 1 sl.
5. prj. Er prjónaður eins og 1. prjónn.
6. prj. Er prjónaður eins og 2. prjónn.
7. prj. 1 jaðarlykkja sl, 2 sl, X. Krossið lausu lykkjuna til
vinstri, þannig: Færið lausu lykkjuna yfir á aukaprjón, sem
síðan er hafður framan við lykkj urnar, prj ónið síðan næstu
tvær lykkiur sléttar og því næst lykkjuna á aukaprjóninum
slétta, 1 sl X, endurtakið frá X—X og krossið að síðustu
lausu lykkjuna yfir tvær slðustu lykkjurnar.
8. prj. Brugðin. Endurtakið frá 1.—8. prjóns.
Bakstyktci: Fitjið upp 130 (138) 1 á prjóna nr. 3, prjónið
6 prjóna slétt fram og til baka (garðaprjón). Skiptið yfir á
prjóna nr. 3(4 og prjónið munstrið. Þegar komnir eru 17
(18) sm er fellt af fyrir handvegum, fyrst 2 1 í hvorri hlið
og síðan 8 sinnum 1 1, annan hvern prjón. Að síðustu er
felld af 11 í hvorri hlið. Þá eiga að vera eftir 108 (116) 1, sem
geymdar eru á aukaprjóni eða þræði.
Hægra framstykki: Fitjið upp 68 (72) 1 á prjóna nr. 3 og
prjónið 6 pri. fram og til baka (garðaprjón). Skiptið yfir á
prjóna nr. 3(4 og prjónið munstrið að undanteknum 6 fyrstu
lykkjunum á hægri hlið sem prjónaðar eru með garðaprjóni.
Þegar komnir eru 17 (18) sm er fellt af fyrir handvegi,
fyrst 2 1 í hvorri hlið og síðan 8 sinnum 1 1, annan hvern
prjón. Þá eiga að vera eftir 58 (62) 1. Prjónið síðan 2 prjóna
og geymið síðan lykkjurnar á aukaprjóni.
Vinstra framstykki: Er prjónað eins nema garðaprjóns-
kanturinn kemur vinstra megin.
Ermar: Fitjið upp 66 (70) 1 á prióna nr. 3 og prjónið 4
sm brugðningu, 1 sl og 1 br. Skiptið yfir á prjóna nr. 3(4
oe nriónið munstrið. Aukið út í byrjun og lok hvers prjóns
1 1. 4 h”ern sm, 4 sinnum. Þá eiga að vera 74 (78) 1 á prjón-
inum. Þegar kominn er 20 (21) sm eru felldar af 2 1 í hvorri
hlið og 8 sinnum 1 1, annan hvern prjón. Þá eru eftir 54
(58) 1 á prjóninum. Fellið af 1 1 í byrjun næstu tveggja
prióna. Látið lykkjurnar sem eftir eru 52 (56) á aukaprjón.
HEIMIIJSi*
Bryndís
Steinþórsdóttir
H
S smmzH
Berustykki: Prjónið því næst peysuhlutana saman á einn
prjón þ. e. hægra framstykki 58 (62) 1, hægri ermi 52 (56)
1, bak 108 (116) 1, vinstri ermi og vinstra framstykki. Alls
328 (352) 1. Prjónið því næst 6 umferðir sléttar (garða-
prjón), en takið úr eftir fyrstu 6 1 og fyrir síðustu 6 1 (þ. e.
garðaprjónskantana) á eftirfarandi hátt: X 2 sl saman, 1
sl X. Endurtakið frá X—X og endið með 2 sl saman. Lykkj -
urnar eru þá 222 (238). Á 5. prjóni eru prjónuð hnappagöt
á hægra framstykki, prjónið 3 1, fellið af 2 1, prjónið prjón-
inn út og næsta prjón að hnappagatinu; þar eru fitjaðar
upp tvær lykkjur fyrir ofan þær sem felldar voru af. Eftir
þessar 6 garðaprjónsumferðir eru prjónaðir 8 prjónar
munsturprjón og því næst 6 prjónar garðaprjón með úr-
töku á fyrsta prjóni. Prjónið fyrst 6 garðaprjónslykkjurnar
og síðan X 2 sl saman og 2 sl X. Endurtakið frá X—X og
endið með 2 sl saman innan við garðaprjónskantinn. Prjón-
ið hnappagatið á sama hátt og áður þegar fimmti garða-
prjónsprjónninn er prjónaður.Þá eiga lykkjurnar að vera 169
(187). Prjónið þá 8 munsturprjóna og síðan 6 garðaprjóna,
en takið úr á fyrsta prjóni, þannig X 1 sl, 2 sl saman X,
endurtakið frá X—X og að lokum 2 sl saman innan við
garðaprjónskantinn. Á 5. prjóni er þriðja hnappagatið
prjónað. Eftir eru þá 117 (124) 1. Prjónið því næst tvo prjóna
slétt prjón og takið úr á fyrsta prjóni með jöfnu millibili
svo'að lykkjurnar verði 110 (120). Prjónið því næst gataröð
innan við garðaprjónskantana þ. e. X 2 sl saman, bregðið
bandinu um prjóninn X, endurtakið frá X—X. Prjónið að
síðustu 3 prjóna slétt prjón. Fellið af.
Hettan: Fitjið upp 64 1 á prjóni nr. 3(4 og prjónið 14 1
garðaprjón og 50 1 munsturprjón, þar til komnir eru 34
sm. Fellið af. Leggið peysuhlutana á rakt stykki og festið
kantana með títuprjónum ef þarf. Leggið rakt stykki yfir
og látið þorna. Saumið hliðar og ermasauma með aftursting
(takið þráð úr gaminu sem saumað er með). Brjótið hett-
una tvöfalda og saumið hnakkasauminn með aftursting á
röngunni. Brjótið garðaprjónskantinn tvöfaldan yfir á rétt-
una. Saumið síðan hettuna við hálsmálið innan við garða-
prjónskantana. Saumið í kringum hnappagötin og festið
hnappana. Búið síðan til snúru, þræðið í hálsmálið og festið
sitt hvorum megin við garðaprjónskantana.
60