Samvinnan - 01.02.1970, Blaðsíða 49

Samvinnan - 01.02.1970, Blaðsíða 49
myndin sýnir atriði úr verðlaunakvikmynd þorgeirs þorgeirs- sonar, „maður og verksmiðja". ekki neinu. hópurinn smitar vitanlega og skiln- ingur og áhugi hríðvex á gæðaræmum. í vetur — á 4. starfsári kvikmyndaklúbbs mennta- skólans í reykjavík — er í fyrsta skipti uppselt á sýningar klúbbsins. kjarninn hefur á 4 árum vaxið svo að sýningarstaðurinn — gamla bíó — rúmar ekki lengur allt það unga fólk sem sækist eftir að horfa þar á gæðaræmur þegar þær bjóðast á hálfsmánaðarfresti. þessari starfsemi stjórna 2 eða 3 reynslulausir táningar fyrirhafnarlítið — vitanlega kauplaust meðfram námi. fullorðnir bíóstjórar í reykjavík (sem eru einu dreifingaraðilar á ræmum hérlendis) hafa verið spurðir hvort ekki sé hægt að draga af þessu lærdóm hvert skynsamlegt sé fyrir ein- hverja þeirra að stefna í ræmvali og tilhögun. þeir svara alvarlegir í bragði — hægt og skýrt og fumlaust: ,,nei.“ svo endar hver sitt ævi- svall. í flæðarmálinu bæði lokaðar og lausbeizlaðar klíkur í reykja- vík og víðar rekast í svolítilli ræmgerð sér til dundurs. undantekningarlaust ungt fólk að verki. þaðan koma stuttar og kollóttar ræmur af og til. ekki má heldur gleyma því að við sjónvarp starfa nokkrir áfjáðir heimildar og fréttaræmundar. en meðan enginn fastur punkt- ur er nokkurs staðar — enginn hvati til vinn- unnar eða ástæða til ræmgerðar fyrir ungt fólk nema fúsklöngun þess og hugsanleg fjár- eyðsluduld — verður ekki margt. samhengis- leysið fæðir af sér óöryggi. sjónvarpið hafnaði til dæmis ræmu sem nemendur í menntaskól- anum við hamrahlíð klöstruðu saman af kostu- legum vanefnum en sögufrægri lipurð í fyrra — þótti hún „skrítin". það er ekki víst að sagan muni velja dagskrárstjórn sjónvarpsins eins vægt orð og „skrítin". þessi fullvissa um að bera af verkum sínum verulegt fjárhags- tjón — en vonleysi um að koma þeim á fram- færi — veldur skiljanlega doða. samt er reynt að klóra í bakkann. hugur í einstaka manni. ekki verður lögð ofmikil áherzla á þá stað- reynd að það leysir ekki þennan vanda að rétta sjónvarpinu eddafilm SIC (society of icelandic cinematographers) eða einhverju öðru fólki fé til ræmgerðar llkt og einusinni var eitthvað byrjað á. jafnvel þótt svo ólíklega brygði við að aurarnir dygðu til framkvæmda. fyrsta skrefið til úrlausnar í ræmmálum er ekki efnalegs eðlis — heldur á andlega sviðinu. hugarfarsbreytingu þarf til. fvrr en burðarásar í menningarútvegi þjóðarinnar viðurkenna ræmuna fuilgilda framleiðslugrein — til jafns við bókmenntir tónlist myndlist — er ekki hægt að búast við eða ætlast til að raunveruleg kröftug og frjó íslenzk ræmútgerð hefjist. ekki fyrr en stutt verður við bakið á gæðabíóum (og eingöngu þeim) líkt og leikhúsinu. þegar efnisvörur til verksins hafa verið numdar úr lúxustollflokkum. þegar ræmlög hafa verið samþykkt á alþingi — ræmstofnun verið komið á fót og „íslenzka kvikmyndasafninu" gert kleift að komast alminlega í gang. þegar ræm- an verður viðurkennd. þegar allir vöðvar verða leikandi léttir. „en“ — einsog skáldið segir — „drengurinn vaknar við dag og skel og drengurinn veit nú og sér að sjórinn hrifsar sandkastalana — og ber honum söknuð, tár á kinn, hann veit nú vel að valt er að treysta á drauminn sinn.“ (matthías johannessen). + 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.