Samvinnan - 01.02.1977, Side 20

Samvinnan - 01.02.1977, Side 20
Þensla og samdráttur Nálægt aldamótum hófst umtalsvert þensluskeið ís- lenskrar verslunar, og má einkum rekja það til auk- innar peningaveltu og lánamöguleika í bönkum. ís- lenskum verslunum fjölgaði óðum, urðu margar á öll- um helstu verslunarstöðum og sumar mjög smáar. Hinar gamalgrónu stórverslanir, flestar útibú danskra fyrirtækja, áttu í vök að verjast. Samkeppni setti svip sinn á viðskiptalífið; kaupmenn neyttu ýmissa ráða til að draga til sín viðskipti, keyptu afurðir jafnvel á ofurverði og söfnuðu skuldum við banka og heildsala. Víða áttu kaupfélögin fullt í fangi með að halda sín- um hlut af viðskiptunum, jafnvel við félagsmenn, og sum freistuðust til ógætilegra samkeppnisbragða. Viðskiptakreppan 1907 og þrengingar næstu ára komu hart niður á íslenskri verslun. Margir kaupmenn urðu gjaldþrota og aðrir hlutu að draga saman seglin. Fáein nýstofnuð stórfyrirtæki eða verslanasamsteyp- ur, að miklu leyti eign útlendinga, náðu miklum við- skiptum svo að menn óttuðust endurkomu selstöðu- verslunarinnar. Kaupfélögin urðu einnig fyrir áföllum á þessum ár- um. Fáein urðu að gefast upp, þar á meðal helstu kaup- félögin á Snæfellsnesi, Vestfjörðum og Austfjörðum. Af hinum grónu héraðsfélögum var það aðeins Pönt- unarfélag Fljótsdalshéraðs sem hætti störfum, en var í rauninni endurreist sem Kaupfélag Héraðsbúa. Víðast hvar stóðst samvinnuverslunin, þótt varbúin væri að mörgu leyti, kreppuna betur en einkaverslunin. Einnig virtist mönnum samvinnuhreyfingin helst megnug þess að veita mótvægi hinum miklu, hálfer- lendu verslanasamsteypum. í reynd varð kreppan til þess að auka fylgi íslendinga við kaupfélagsskapinn. 1908 Kreppunnar gætti nú til fulls á íslandi og fylgdu óhagstæð viðskiptakjör, fallandi verð afurða, einkum ullar og gæra, en innfluttar matvörur í háu verði. Því versnaði hagur bænda og örðugt að verjast skuldasöfnun í kaupfélögunum sem sjálf áttu undir högg að sækja með lánsfé. Meginviðfangsefni Sambandsins á árinu var að samræma kjötverkun og saltkjötssölu kaupfélaganna. Jafnframt var undirbúið samstarf við samvinnumenn á Suðurlandi. Gullfoss, fyrsta skip Eimskipafélags íslands, við bryggju í Kaupmanna- höfn. Samvinnufélögin tóku þátt í stofnun Eimskipafélagsins og hugðu á nánara samstarf við það en raun varð á. 1909 Viðskiptakjörum brá nokkuð til batnaðar, en voru þó örðug. Aðalfundur Sambandsins var haldinn í Reykjavík og boðið til hans fulltrúum frá kaupfélögum og öðrum samvinnufé- lögum utan Sambandsins. Þar gengu í Sambandið Verslunar- félag Steingrímsfjarðar, Verslunarfélag Hrútfirðinga og Sláturfélag Vestur-Húnvetninga, en sjö önnur félög sendu áheyrnarfulltrúa, flest þeirra starfandi á Suðvesturlandi. Á hinn bóginn voru Pöntunarfélag Fljótsdalshéraðs og Kaup- félag Eyjafjarðar (útfjarðarfélagið) að leysast upp og hverfa úr Sambandinu. Ályktað var um breytingar á lögum Sam- bandsins. Kjötsölumál voru helsta viðfangsefni aðalfundar og lögð á ráð um samstarf Sambandsins og Sláturfélags Suð- urlands. 1910 Gott verslunarár. Staðfestar breytingar á lögum Sambandsins, meðal annars tekið upp nafnið Samband íslenskra samvinnufélaga og þriggja manna stjórn. Pétur Jónsson á Gautlöndum tók nú aftur við stöðu framkvæmdastjóra, en meðstjórnendur hans voru kjömir Sigurður Jónsson í Ystafelli og Hallgrímur Kristinsson. Um haustið fór Jón Jónsson kaupfélagsstjóri Norður-Þing- eyinga til Danmerkur og sá um saltkjötssölu Sambandsins. Dönsk kaupfélög keyptu þá mikið af Sambandskjötinu, svo og næstu ár. 1911 Jón Jónsson sá öðru sinni um saltkjötssöluna og náði góðu verði, en nokkurt fé tapaðist á gjaldþroti kaupmanns eins í Danmörku. Alþingi samþykkti að veita Sambandinu styrk til fyrir- lestrahalds um samvinnumál. Vakning á Suðvesturlandi Eitt hinna gömlu sauðasölufélaga, Kaupfélag Stokks- eyrar, hafði haft mikla verslun um Ámes- og Rangár- vallasýslu, en því hnignaði á síðustu árum 19. aldar, og kvað þá lítið að samvinnustarfi á öllum suðurhelm- ingi landsins. En um aldamót hófst samvinnuvakning á Suðvesturlandi. Áhrif og fyrirmyndir komu Sunn- lendingum frá Danmörku, einkum með Sigurði Sig- urðssyni ráðunaut, ekki síður en frá innlendu kaup- félögunum gömlu. Að dönskum hætti var mest kapp lagt á að stofna sérstök afurðasölufélög. Fyrst komu smjörbúin, flest á árunum 1901—1905 og fáein raunar í öðrum lands- hlutum einnig, sem gerðu smjör að verðmætri útflutn- ingsvöru á þeim árum sem hvað erfiðast var að koma kindakjöti í verð. Síðan Sláturfélag Suðurlands 1907 sem þá náði allt vestur á Snæfellsnes og var frá byrjun einna stærst í sniðum íslenskra samvinnufélaga. Á árunum 1904—1907 voru stofnuð Kaupfélag Borg- firðinga og Kaupfélag Skaftfellinga, svo og tvö ný kaupfélög í Ámessýslu. Samvinnufélög bænda voru þá orðin bæði öflug og útbreidd á Suðvesturlandi, en ekk- ert þeirra gekk í Sambandið fyrr en löngu síðar. Hið sama gilti raunar um kaupfélögin á Vesturlandi, svo að starfssvæði Sambands íslenskra samvinnufélaga takmarkaðist allt til 1916 af Strandasýslu og Fljóts- dalshéraði. 16
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.