Samvinnan - 01.02.1977, Síða 23

Samvinnan - 01.02.1977, Síða 23
Hinn málshátturinn: „Eins dauði er annars líf“ sann- ast aftur á móti þar sem kaupmenn standa andspænis hver öðrum sem keppinautar. Ég þarf engum að útskýra þann hagnað sem kaupmaður hefur af því ef keppinautur hans verður undir eða dettur úr sögunni. En einnig í þessu er kaupfélögunum ólíkt háttað. Milli þeirra er alveg óhugsandi að verslunarkeppni í eiginlegum skilningi eigi sér stað, og hagsmunir þeirra eru mjög nátengdir. Ef eitt- hvert kaupfélag veltur um koll, þá hafa hin kaupfélögin ekkert gott af því, heldur einungis óánægju og skaða. Samkeppni er hvorki eðli né tilgangur kaupfélaga, heldur er tilgangur þeirra og eðli: samvinna allra, eindrægni og skipulag.------ Sumir sem hafa samkeppnina fyrir átrúnaðargoð, munu að líkindum reka upp stór augu þegar ég tel það með kostum kaupfélaganna að útrýma verslunarkeppni. En fyrir hví er frjáls samkeppni í verslun nauðsynleg? Fyrir því að verslunin er í höndum einstakra manna sem gjöra hana að einokun ella. Mér dettur ekki annað í hug en að taka verslunarkeppni sem meðal gegn einokun ef ekki er á betra völ. Svo mega og allir hugga sig við það að á meðan verslunin er aðeins að sumu leyti í höndum kaup- félaga, koma þau að góðum notum sem keppinautar gegn kaupmönnum þótt samkeppnin sé ekki markmið þeirra. En þegar vel er aðgætt, er samkeppnin í atvinnuvegunum ill nauðsyn; hún eyðir kröftum manna í óþarfa baráttu °g meinbægni hvers við annan og spillir vinsamlegri sam- vinnu.------- En hvernig fer þá kaupfélagsskapurinn að? Hann gjörir kaupmennina, sem slíka, óþarfa og um leið alla þeirra samkeppni. Hann leiðir verslunina á bekk með öðrum vel- ferðarmálum og kemur henni inn undir almennt skipu- iag; hann verndar einstaklinginn fyrir ofurvaldi og hnefarétti þeirra sem mega sín meira, og styður hann til þess að geta skipt vöru fyrir vöru á beinasta, eðlilegasta °g þess vegna kostnaðarminnsta hátt.------ Ef öll verslun landsins væri í höndum kaupfélaga og ef kaupfélögin væru öll í sambandi, þá væri það ekki sér- lega margir menn sem þyrfti til hinna vandasömustu starfa, og langtum færri en kaupmenn eru. Þess vegna setti að vera minni örðugleikar á því að þessir menn væru hæfir til starfs síns að náttúrufari og menntun.--- Einn af kostum kaupfélaganna er sparnaður. Eins og þegar er drepið á, er það eiginlega mikill hluti af kaup- hiannastéttinni, með eyðslu hennar og óhófi, sem kaup- félögin geta sparað; þetta hefur með réttu verið talinn einn af aðalkostum þeirra. Að vísu þarf kaupfélagsskap- hrinn menn í sína þjónustu; en hann getur komist af með þá miklu færri og miklu nægjusamari; þeir kraftar sem sparaðir eru, geta snúist að einhverri nytsamri og fram- leiðandi vinnu. — — — Kaupfélagsskapurinn, eins og hver annar félagsskapur, hefur menntandi áhrif á margan hátt. Menn kynnast skoðunum og tilfinningum hver annars; sú viðkynning styrkir skoðanirnar og gjörir þær gleggri og þjálli; hún hrepur niður smásmugulegum ríg millum manna og sveita, hún glæðir félagsanda og kemur mönnum á lagið hieð að vinna saman ... En svo er það og sérstakur kostur á kaupfélagsskapnum framyfir flestan annan frjálsan félagsskap að hann gríp- ur til svo margra og hann heldur þeim föstum með þeim höndum er reynast sterkari en önnur félagsbönd; það er stundarhagnaðurinn ... Og margur sem í fyrstu dróst u^eð, einungis fyrir stundarhagnaðinn, hefur síðarmeir fylgst með af æðri hvötum. 1914 Hallgrímur Kristinsson fór þriðja sinni utan til að selja kjöt Sambandsins. Var jafnframt ákveðið að hann tæki að sér til bráðabirgða erindrekastarfið fyrir samvinnufélögin frá næstu áramótum því að enginn annar naut bæði trausts Sláturfélagsins og Sambandsins. Heimsstyrjöldin fyrri hófst á árinu og olli viðskiptatrufl- unum og verðhækkunum. Jók það fylgi við kaupfélögin að kaupmenn þóttu ganga á lagið að hækka verð þeirra vara sem hörgull varð á. 1915 Hallgrímur Kristinsson kom upp skrifstofu í Kaupmanna- höfn og sá um sölu ýmissa afurða fyrir Sambandið og aðra. Seint á árinu komu Oddur Rafnar og Guðmundur Vilhjálms- son til starfa á Hafnarskrifstofu, en Sambandið hafði þá enga fasta starfsmenn á íslandi. Hallgrímur hóf undirbúning að sameiginlegum innkaupum fyrir kaupfélögin. Fékk hann loforð fyrir rekstursláni í ný- stofnuðum Samvinnubanka Dana gegn ábyrgð þingeysku og eyfirsku kaupfélaganna, en til að tryggja lánstraust til frambúðar þurfti að koma á almennri samábyrgð innan kaupfélaganna og Sambandsins sjálfs, og var hafinn undir- búningur þess. 1916 Hafnarskrifstofa var nú rekin af Sambandinu einu, og þar fór aðalrekstur þess fram, til að mynda allt reikningshald. Þó hafði Sambandið einnig opna skrifstofu á Akureyri hluta ársins. Viðskipti við Danmörku voru takmörkuð af völdum ófriðar- ins. Þó sá Hafnarskrifstofa um verulegan hluta afurðasöl- unnar, meðal annars saltkjötssölu til Noregs, svo og nokkur vörukaup fyrir félögin, einkum Kaupfélag Eyfirðinga. Haldið var samvinnunámskeið á Akureyri, einkum til að búa menn undir störf við rekstur kaupfélaga, og kenndu þeir Hallgrímur Kristinsson og Sigurður í Ystafelli. Nybrograde 28 í Kaupmannahöfn. Frá haustdögum 1915 var þar í tveim- ur herbergjum á götuhæð skrifstofa Sambandsins og íbúð Hallgríms Kristinssonar, en fyrst hafði skrifstofan verið í kjallara að Farvergade 15.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.