Samvinnan - 01.02.1977, Page 33

Samvinnan - 01.02.1977, Page 33
1940 Sambandshúsið 1942, sést í Arnarhvol til vinstri, en á ytri höfninni breskt liðsflutningaskip. Stríðið og hersetan mótuðu verslun íslendinga um sex ára skeið. (Ljósm. Skafti Guðjónsson) Vegna stríðsins voru viðskipti mest bundin við Bretland og Ameríku. Sambandið setti á stofn skrifstofu í New York undir stjórn Helga Þorsteinssonar. Hernám íslands og aukin atvinna í landinu leiddi til aukinnar afurðasölu innanlands. Sambandið kom upp bréfaskóla sem Ragnar Ólafsson veitti forstöðu fyrsta árið og síðan Jón Magnússon. Tvö kaupfélög voru stofnuð á árinu, og mátti þá heita að samvinnuverslun starfaði í hverju byggðarlagi. Fullgerð var íslandskvikmynd sem Sambandið lét gera. 1941 Samvinnuverksmiðj urnar bjuggu við fólkseklu. Sambandið flutti út freðfisk án milliliða í fyrsta sinn, en sá ekki um kjötútflutning því að hann var allur á vegum her- námsveldanna. Ullarsala gekk treglega og var svo löngum til stríðsloka. 1942 Hagur samvinnuverslunarinnar var góður. Sambandið hafði bolmagn til að greiða félögunum allmikið fyrirfram upp í óseldar afurðir, en þær höfðu mjög safnast fyrir á árinu. Vörugeymslur Sambandsins við Reykj avíkurhöfn voru stækkaðar. Áföll og aðhald Samvinnuverslunin 1922—45 einkennist af harðri viðreisnarbaráttu eftir áföll þau sem stöfuðu af verð- hruninu 1920, gengisfellingunni 1925 og heimskrepp- unni frá 1930. Þyngstur var róðurinn 1922—23 og 1931— 35. Á báðum þeim skeiðum urðu kaupfélögin fyrir miklum skuldatöpum, og nokkur urðu að hætta störf- um, ekki síst þau sem stóðu utan Sambandsins. Jafnvel þau ár sem byrlegar blés, var aðhalds gætt í viðskiptasökum og kapp lagt á að sporna við skulda- söfnun og byggja samvinnuhreyfinguna upp að eigin fé. Þó var leitast við að hafa verslun sem greiðasta með þær vörur sem stuðluðu að aukinni framleiðslu, vélar og verkfæri, áburð, fóðurvörur. Að því lúta flest nýmæli í innflutningsverslun Sambandsins á þessu tímabili. Frá árinu 1934 og allt til stríðsloka voru í gildi víð- tæk innflutnings- og gj aldeyrishöft. Skipting innflutn- ingsleyfa milli samvinnufélaga og heildsala var mikið deiluefni, og þótti samvinnumönnum skorður reistar við eðlilegum vexti samvinnuverslunarinnar. _________________________________________________ 29
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.