Samvinnan - 01.02.1977, Qupperneq 35
Þeir lifa lengst sem með orðum eru vegnir
Á sextugsafmæli Sigurðar Kristinssonar komst Jónas
frá Hriflu meðal annars svo að orði í afmælisgrein í Sam-
vinnunni:
Undir stjórn Sigurðar Kristinssonar á undangengnum
17 árum hefur Sambandið ekki aðeins orðið stærsta,
heldur líka fjárhagslega öruggasta fyrirtæki á íslandi.
Það hefur vaxið jafnt og þétt, þrátt fyrir kastbylji kreppu-
tímanna og gífurlega breyting á atvinnuháttum þjóðar-
innar. Hinir miklu fellibyljir í fjármálum þjóðarinnar
hafa jafnað við jörð eða brotið til hálfs nálega öll þau
fjármála- og atvinnufyrirtæki, er mest bar á í landinu,
þegar Sigurður Kristinsson tók við forstöðu Sambandsins.
Það skortir þó ekki, að þungir hugir hvíldu á Samband-
inu í hinni miklu kreppu eftir stríðið. Því var haldið
fram opinberlega af mjög greindum og lífsreyndum
mönnum, að Sambandið hefði verið stofnað af hálfgerð-
um ævintýramönnum, í eigingjömum tilgangi. Það var
fullyrt, að það væri hættulegt að vera félagsmaður þeirr-
ar stofnunar og hættulegt að trúa því fyrir fjármunum,
sem ekki áttu að glatast. Á þeim tíma var ekki spáð eins
illa fyrir neinu fyrirtæki í landinu eins og Sambandinu.
Um flest önnur hliðstæð fyrirtæki létu menn sér nægja
að leyfa reynslunni að skera úr um lífsgildi þeirra.
En máltækið segir, að þeir lifi oft lengst, sem með
orðum eru vegnir, og svo hefur farið um Sambandið. Það
hefur átt að stríða við marga og mikla erfiðleika á þess-
um undangengnu bylgjutímum. En bát þess hefur ekki
hvolft. Sigurður Kristinsson hefur verið hinn veðurglöggi
stýrimaður.
í stjórn sinni á málum Sambandsins hefur hann fylgt
einföldum starfsreglum. Hann er allra manna áreiðan-
legastur í orði og verki, lofar ætíð minna en hann efnir.
Hann er sívinnandi, lifir fyrir starfið, hefur að eigin ósk
kaup, sem er miklu lægra en allra annarra manna á ís-
landi í sambærilegri stöðu. Og þegar hörð ár hafa gengið
yfir Sambandið, hefur Sigurður byrjað á að lækka kaup
sitt, og síðan lagt að félagsbræðrum sínum að spara hver
á sínu heimili. Um síðustu áramót brá mörgum mönnum
í brún, er þeir fréttu að Sambandið skuldaði 6 þús. kr.
Stjórn Sambandsins og framkvæmdastjórar 1935. Talið frá vinstri,
aftari röð: Sigurður Bjarklind kaupfélagsstjóri Húsavík, Einar
Árnason alþingismaður Eyrarlandi, Ingólfur Bjamason í Fjósa-
tungu formaður Sambandsins, Þorsteinn Jónsson kaupfélagsstjóri
Keyðarfirði og séra Sigfús Jónsson kaupfélagsstjóri Sauðárkróki.
Fremri röð: framkvæmdastjórar Sambandsins þeir Aðalsteinn Krist-
msson, Sigurður Kristinsson og Jón Ámason.
Sigurður Kristinsson (1880—1963) tók við stjórn Kaupfélags Eyfirð-
inga af Hallgrími bróður sínum og varð síðan forstjóri Sambandsins
að honum látnum 1923, en hafði þá setið í Sambandsstjóm í átta ár.
Hann var forstjóri til 1945 og síðan formaður Sambandsstjómar
1948—1960.
í bönkum utan lands og innan, framyfir innstæður. Marg-
ir hefðu trúað og sumir jafnvel ætlað, að skuldir þess
væru 6 miljónir. Eftir fyrstu miklu kreppuna skuldaði
Sambandið vissulega mjög mikið. En það hefur staðið í
skilum við alla. Enginn lánardrotinn hefur tapað einum
eyri á Sambandinu. Það hefur aldrei fengið eftirgjöf
skulda. Það hefur í stjórnartíð Sigurðar verið stofnun,
þar sem var unnið og sparað, greiddar skuldir hörkuár-
anna, einstökum félagsdeildum hjálpað til að rétta við
fjármál sín og samtímis færðar út kvíar, þannig að Sam-
bandið er nú stærsta fyrirtæki landsins fyrir utan hið
íslenska mannfélag.
Ég hygg, að ástæðan til þess að Sambandið og deildir
þess hafa komið skipi sínu heilu yfir marga af þeim
boðum, þar sem samferðamenn hafa strandað, hafi fyrst
og fremst verið sú, að félagsmenn og forráðamenn sam-
vinnufélaganna hafa gert til sín harðar kröfur, áður en
þeir báru fram kröfur á hendur öðrum. Og eins og Sig-
urður Kristinsson hefur að völdum verið fremstur í fylk-
ingu Samvinnumanna, þá hefur hann einnig í skapgerð
allri, vinnubrögðum og dagfari verið i fremstu röð með
að stunda þær manndómsdyggðir, sem eru undirstaða
heilbrigðs þroska í hverju mannfélagi.