Samvinnan - 01.02.1977, Side 44
Margrét Helgadóttir, Albin Johansson, Linnéa Johansson og Erlendur
Einarsson við afhendingu Hamrafells í september 1956.
Harry Frederiksen (t. h.), fyrsti framkvæmdastjóri Iönaðardeildar
(1950—61 og 1965—75), með aðstoðarmönnum við undirbúning iðn-
sýningar 1952.
Ármúli 3 í Reykjavík, aðsetur Véladeildar og Samvinnutrygginga.
Byggingar- og fóðurvöruinnflutningi Sambandsins var að
miklu leyti breytt úr lagersölu í umboðssölu.
Efnahagsráðstafanir ríkisstj órnarinnar þóttu óhagstæðar
samvinnuhreyfingunni, þ. á m. innlánsbinding sem tók
til innlánsdeilda kaupfélaganna, söluskattur sem óttast var
að heimtast mundi illa af keppinautum samvinnufélaganna,
og mikil skerðing rekstrarlána landbúnaðarins.
Norðurlandaviðskipti Sambandsins fóru orðið mest um
hendur samnorrænna samvinnusamtaka, svo að óhætt þótti
að hætta rekstri Kaupmannahafnarskrifstofunnar.
Sigurður Markússon tók við af Sigursteini Magnússyni sem
framkvæmdastjóri í Leith.
1961
Samvinnuhreyfingin átti frumkvæði að lausn víðtækra verk-
falla með því að bjóða kauphækkun á undan öðrum atvinnu-
rekendum.
Sambandið hóf kornrækt á Stórólfshvoli á Rangárvöllum,
svo og grasrækt til grasmjölsframleiðslu, samtals á yfir
100 hekturum.
Skipulagt var starfsnám fyrir nemendur úr Samvinnuskól-
anum og starfsmenn samvinnufélaga.
Lögð var niður skrifstofa Sambandsins í New York.
1962
Áttunda skipið bættist í Sambandsflotann, olíuskipið Stapa-
fell.
Fataverksmiðjan Hekla fluttist í nýtt verksmiðjuhús, og
ullarverksmiðj an Gefjun fékk aukinn vélakost.
Hafinn rekstur tilraunaverksmiðj u sjávarafurðadeildar í
Hafnarfirði þar sem meðal annars var reyktur áll.
Bretlandsskrifstofa Sambandsins flutt frá Leith til Lundúna.
Helgi Pétursson lét af framkvæmdastjórn Búvörudeildar, en
Agnar Tryggvason tók við; Harry Frederiksen varð þá fram-
kvæmdastjóri í Hamborg, en Helgi Bergs framkvæmdastjóri
Iðnaðardeildar.
Sambandið minnist 60 ára afmælis síns með því að leggja
fram milljón króna til jarðvegsrannsókna.
iljörtur Hjartar, fyrsti framkvæmdastjóri Skipadeildar (1952—1976),
hjá Iíkani Arnarfells.
40