Samvinnan - 01.02.1977, Blaðsíða 49
Til starfa tók Félag Sambandsfiskframleiðenda. Sambandið
eignaðist fiskréttaverksmiðju i Englandi, en tilraunaverk-
smiðjan í Hafnarfirði seld.
Helgi Bergs lét af störfum hjá Sambandinu; varð þá Sig-
urður Markússon framkvæmdastjóri Skipulagsdeildar, en
Jón Þór Jóhannsson tók við Véladeild af Sigurði. Þá varö
Kjartan P. Kjartansson framkvæmdastjóri í Lundúnum í
stað Bjarna V. Magnússonar.
1970
Landnám ríkisins tók við rekstri grasmjolsverksmiðjunnar
á Stórólfsvelli.
Sambandið hóf viðræður við Alþýðusambandið um auki
samstarf þeirra.
1974
Unnið var við stórbyggingu Birgðastöðvar og Skipulags-
deildar við Sundin í Reykjavík og fyrsti hluti hennar tekinn
í notkun.
Skýrsluvéladeild tók i notkun nýja og afkastamikla tölvu.
Sambandið gerði tillögur um sam-norrænan samvinnuiðnað
á íslandi.
Gerðar voru ráðstafanir til að verðtryggja að hluta greiðsl-
úr úr Lifeyrissjóði SÍS.
Gylfi Gröndal tók við ritstjórn Samvinnunnar af Sigurði
A. Magnússyni, sem varð skólastjóri Bréfaskólans. Jafn-
framt tók Samvinnan við hlutverki Hlyns, sem Sambandið
hætti að gefa út.
Haukur Ingibergsson varð skólastjóri Samvinnuskólans i
stað sr. Guðmundar Sveinssonar.
Fyrstu stúdentar Samvinnuskólans útskrifuðust vorið 1975. Talið fra
vinstri: Skarphéðinn Gunnarsson, Hallfríður Kristinsdóttir, Svernr
Þórólfsson, Haukur Ingibergsson skólastjóri, Svavar Larusson yfirkenn-
ari, Gísli Guðmundsson, Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir og Arnþor
Angantýsson.
1971
Rekstrarafkoma Sambandsins var allgóð þriðja, árið í röð.
Kornturnar Sambandsins og fleiri við Sundahöfn í Reykja-
vík teknir i notkun.
Þrjú skip bættust í Sambandsflotann, Litlafell, Skaftafell
og Hvassafell, en Litlafellið eldra var selt, svo og Disarfell
ári síðar, og hafa skipin síðan verið átta.
Skinnhúfuverksmiðjan Höttur tók til starfa í Borgarnesi.
Sambandið keypti verslunar- og skrifstofuhús við Suður-
landsbraut í Reykjavik.
Hafin á ný útgáfa fréttabréfs Sambandsfrétta.
Böðvar Valgeirsson varð framkvæmdastjóri í Hamborg í sta'
Gylfa Guðmundssonar.
Stofnað félagsheimili starfsfólks samvinnufélaganna í
Reykjavík og Nemendasambands Samvinnuskólans í husi
Sambandsins, Hamragörðum, sem verið hafði bustaður
Jónasar Jónssonar frá Hriflu.
Starfsaldursmerki eru jafnan veitt á árshátíð starfsmanna Sambands-
ins. Hér afhendir Erlendur Einarsson Ásthildi Tómasdóttur viðurkenn-
ingu fyrir 25 ára starf.
1972
Fataverksmiðj an Hekla á Akureyn tok í notkun viðbotar
húsnæði.
Kjötiðnaðarstöð Sambandsins í Reykjavík tók til starfa.
Sambandið og Osta- og smjörsalan komu upp tilrauna
eldhúsi.
1973
Fiskréttaframleiðsla Sambandsins í Englandi var flutt í
Reykjavíkur.
Gefjun fékk aukinn vélakost.
Komið var upp fóðurblöndunarstöð við Komturnana í
Reykjavík. ... ..
Fræðslustarf Sambandsins og blaðaútgáfa allt lagt undi
Skipulagsdeild sem síðan heitir Skipulags- og fræ s u ei .
Framhaldsdeild Samvinnuskólans tók til starfa i Reykjavik.
Disarfellið nýja keypt í stað Arnarfells.
Hús Sambandsins, Hamragarðar, þar sem Jónas Jónsson frá Hriflu bjo,
var að honum látnum gert að félagsheimili starfsfólks. Þar er einnig
skrifstofa LÍS, Landssamband íslenzkra samvinnustarfsmanna, sem var
stofnað 2. september 1973. Sama ár tók Starfsmannafélag Sambandsins
í notkun fyrstu orlofshúsin í nágrenni Bifrastar.
45-