Samvinnan - 01.02.1977, Síða 99

Samvinnan - 01.02.1977, Síða 99
Eftirmáli Þetta afmælishefti Samvinnunnar á að varpa ljósi á 75 ára sögu Sambandsins. Þá eru og í ritinu heimild- ir um Sambandskaupfélögin, en starfsemi þeirra og Sambandsins tvinnast saman í eina heild. Hér verða elcki settar fram hugleiðingar um það liðna, en aug- ljóst er, að starfsemi Sambandsins og Sambandskaup- félaganna á þessari öld hefur verið merkilegur þáttur í sköpun velferðarríkis á Islandi. I stað þess að ræða um það liðna vildi ég með nokkrum orðum minnast á framtíðina. íslenzka samvinnuhreyfingin stendur á tímamótum, þegar Sambandið er 75 ára, og að fimm árum liðnum á elzta kaupfélag landsins, Ivaupfélag Þingeyinga, 100 ára afmæli. A þessum tímamótum er fýsilegt að bollaleggja um stöðu samvinnuhreyfingarinnar og jafnframt því bohaleggja um framtíðarverkefnin. ísland er eitt Norðurlanda, en þjóðir þeirra hafa óumdeilanlega komizt næst því að skapa það sem menn kalla velferðarríki, þótt ætíð sé deilt um skipt- ingu þjóðarauðs. Helztu einkenni velferðarríkja eru þessi: Frelsi til að láta í ljós hugsanir sínar í mæltu eða rituðu máli. Lýðræðisskipulag. Veruleg opinber afskipti, er miða að því að efla þjónustu við borgarana og jafna kjör þeirra. Þrír megin geirar í efnahagslífinu: Opinber rekstur ríkis, bæja og sveitarfélaga. Einkarekstur. Samvinnurekstur. Segja má, að þegar þjónustustarfsemi er sleppt, þá séu það form einkarekstrar og samvinnurekstrar, sem heyja samkeppni. Á Islandi er samvinnurekstur víða öflugur úti á landsbyggðinni, bæði hvað varðar verzlun, afurða- sölu og afurðavinnslu. Iðnaður á vegum sam\dnnu- félaga fer og vaxandi. Sam\’innuhreyfingin hetur þannig um langt skeið verið íslenzkri alþýðu til sjáv- ar og sveita örugg brjóstvörn. En sarnt sem áður eru nokkur svið, sem hún þarf enn í framtíðinni að halda uppi öflugri sókn á. Eg mun víkja að hinum helztu af þessum sviðum hér á eftir: 1) Á höfuðborgarsvæðinu hefur samvinnurekstur í verzlun ekki náð þeirri markaðshlutdeild, sem æski- leg getur talizt, miðað við það að geta veitt einka- rekstri nægilega samkeppni. Hér kemur ýmislegt til. Borgaryfirvöld hafa veitt einkarekstri forgang fram yfir samvinnurekstur, hvað varðar lóðaúthlutanir og starfsaðstöðu. Um þetta eru áþreifanleg dæmi. Er málum þessum mjög á annan veg farið í höfuðborg- um hinna Norðurlandanna, þar sem lögð er áherzla á að deila lóðum á sanngjarnan hátt milli samvinnu- félaga og einkaverzlunar. Það er því eitt stœrsta og nærtœkasta framtíðar- verkefni samvinnulireyfingarinnar að ná stœrri hlut- deild í smásölumarkaðnum á Stór-Reykjavíkursvœð- inu. Kaupfélag Reykjavíkur ognágrennis verður að hafa forgöngu um aðgerðir til aukinnar smásöluverzlunar. Félagið hefur á bak við sig fjölda félagsmanna úr verkalýðshreyfingunni. Nauðsynlegt er að virkja þenn- an stóra hóp. Þar þarf að fara saman framkvæmda- hugur forustumanna og áhugi og sem mest samstaða félagsmannanna. Neytendur í Reykjavík eiga að beita fyrir sig samvinnurekstri til þess að drýgja tekjur sínar. Heildarsamtökin, Sambandið, verða að styðja nýja sókn samvinnufélaganna á Stór-Reykjavíkur- svæðinu. 2) Samvinnuhreyfingin er í sókn í iðnaði. Ullar- og skinnaiðnaður er þar veigamestur. Stefna Sambands- ins er að byggja upp stórar og afkastamiklar verk- smiðjur fyrir frumvinnslu, en styðja síðan fullvinnslu á ýmsum stöðum á landinu, eftir því sem aðstæður leyfa. Með því að vinna öll skinn í loðkápur eða aðrar flíkur úr skinnum, er unnt að margfalda útflutnings- verðmæti þessa hráefnis. Það þarf að reisa pelsa- saumastofur á nokkrum stöðum á landinu. Sama máli gegnir um ullina. Það á að vinna flíkur úr allri íslenzku ullinni, en hætta að flytja út lopa. Lopaútflutningurinn hefur þegar stórskaðað markaðs- möguleika íslendinga varðandi sölu á prjónaflíkum. Samvinnufélögin hafa forystu í ullar og skinnaiðn- aði. Það er framtíðarverkefni samvinnuhreyfingarinnar að lialda þessari forystu og vinna markvisst að full- vinnslu þeirra hráefna, sem til falla frá landbúnaðin- um. Jafnframt þarf að vinna að því með framleiðslu á sérstökum gæðavörum úr þessum hráefnum að hækka hrávöruverðið.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.