Samvinnan - 01.02.1981, Page 27
í upphafi setti samvinnuhreyfingin sér
eitt höfuðmarkmið og hefur stefnt að því
æ síðan: að selja góðar og
vandaðar vörur á eins lágu verði og
frekast er unnt.
• Kostir og ókostir
í hverju eru þessir sérstöku samn-
ingar fólgnir, sem þið hafið náð við
framleiðendur, flytjendur, tryggjend-
ur, heildsölu og smásölu?
Varðandi hið siðastnefnda þá gefum
við eftir þriðjung af heildsöluálagn-
ingu og höfum farið þess á leit við
kaupfélögin, að þau geri slikt hið
sama. í sambandi við erlenda fram-
leiðendur ber þess að geta,- að ísland
getur aldrei orðið stór innflytjandi á
alþjóðlegan mælikvarða. Hins vegar er
Sambandið stór innflytjandi miðað
við íslenzkar aðstæður — og það höf-
um við reynt að notfæra okkur. Einn-
ig höfum við rætt við skipafélögin, en
það hefur aldrei verið gert áður. Og
árangur þeirra viðræðna varð sá, að
við fengum 20% afslátt á flutnings-
gjöldum á grunnvörunum. Hið sama
gerðist siðan i viðræðum við tryggj-
endur. Að siðustu má nefna, að til
hagræðingar afgreiðum við grunn-
vörurnar einvörðungu í heilum pöll-
um. Með þvi móti næst sparnaður, en
þó fylgir böggull skammrifi, eins og
oft vill verða, og hann er sá, að ein-
ingarnar eru of stórar fyrir lítil kaup-
félög. Þá er hugsanlegt að mörg félög
á svipuðum slóðum sameinist um inn-
kaup, en þeim fylgir að sjálfsögðu mik-
il vinna fyrir viðkomandi félög. Að
þessu verður áreiðanlega fundið, en
ekki verður við öllu séð. Niðurstaðan
er þvi sú. að grunnvörurnar eru hent-
ugastar fyrir stærri félögin, sérstak-
lega í þéttbýli.
Má ekki segja, að þetta nýja fyrir-
komulag sé beint framhald af „Til-
boðum kaupfélaganna“ — aðeins
miklu stærra í sniðum?
Jú, það má kannski segja það. Hins
vegar voru skoðanir manna á tilboð-
unum orðnar mjög skiptar — þær
skiptust reyndar alveg i tvö horn.
Litlu kaupfélögin voru ánægð með þau
og vildu halda þeim áfram, en viðast
hvar i þéttbýlinu voru verzlunarstjór-
‘
}i i
FmT| n
'T" tm!
arnir eiginlega búnir að gefast upp á
þeim. Til þess að reyna að koma til
móts við þessi óliku sjónarmið höfum
við ákveðið að halda tilboðunum
áfram — í vefnaðarvörum og bús-
áhöldum.
• Markmið samvinnuverzlunar
Sú var tíðin, að orðið sannvirði var
kjörorð kaupfélaganna. Gegnir orðið
grunnverð ekki sama tilgangi?
Jú, einmitt. Og ég held, að þessi
nýju orð grunnvara og grunnverð hafi
heppnast nokkuð vel. Það þarf að
sjálfsögðu að venjast þeim eins og öllu
sem nýtt er. En mér finnst þau segja
skýrt og greinilega það sem við er
átt.
Að lokum: Hefurðu trú á, að verð-
skyn almennings aukist með tilkomu
nýju krónunnar?
Ég vona það sannarlega. Það fer að
sjálfsögðu eftir því, hvort stjórnvöld-
um tekst að hægja á hraðferð verð-
bólgunnar. En ég sé, að eftir gjald-
miðilsbreytinguna eru menn aftur
farnir að ganga með buddur — og mér
finnst það góðs viti.
Ég vil að lokum segja, að það er
einlæg von min, að grunnvörurnar
veki athygli á samvinnuverzluninni og
því höfuðmarkmiði, sem hún setti sér
í upphafi og hefur keppt að æ síðan:
Að selja góðar og vandaðar vörur á
eins lágu verði og frekast er unnt. ♦
Grunnvörum á grunnverði komið fyrir á
sinn stað hjá Kaupfélagi Ámesinga á
Selfossi.
23