Samvinnan - 01.12.1981, Síða 35
Hver og einn þarf að beita eigin atorku
og vitsmunum til að ráða fram úr
aðsteðjandi vandamálum.
Frá fundi kaupfélagsstjóra
1981. I ræðustóli er Steingrím-
ur Hermannsson sjávarútvegs-
ráðherra, en hann var gestur
fundarins.
sagði Haukur Ingibergsson
frá ýmsum ráðagerðum og
hugmyndum varðandi 100
ára afmæli samvinnuhreyf-
ingarinnar á næsta ári.
Ákveðið er að aðalfundur
Sambandsins verði haldinn
á Húsavik 18. og 19. júní, og
20. júní verður hátíðarsam-
koma að Laugum í Þingeyj-
arsýslu. Afmælisins verður
einnig minnzt með ýmsum
öðrum hætti, svo sem gerð
kvikmyndar um starfsemi
samvinnuhreyfingarinnar,
sérstökum afmælistilboðum
kaupfélaganna til félags-
manna sinna og útgáfu bóka
og minjagripa. Haukur
hvatti fundarmenn til að
halda myndarlega upp á af-
mælisárið og sýna þjóðinni,
að samvinnumenn hefðu
ekki til einskis starfað í
heila öld.
Þá flutti Geir Magnússon
framkvæmdastjóri Fjár-
máladeildar ítarlegt erindi
um útlán og vexti, en um
kvöldið var fundarmönnum
boðið að heimsækja Kaup-
félag Árnesinga á Selfossi
og skoða hina nýju og
glæsilegu kjörbúð félagsins.
• Tímamót
í efnahagsmálum
Kaupfélagsstjórafundurinn
hélt áfram á laugardags-
morgun, og hófst með á-
varpi Steingríms Hermanns-
sonar sjávarútvegsráðherra.
í upphafi þess lét hann svo
ummælt, að því betur sem
hann kynntist þjóðmálun-
um, því sannfærðari væri
hann um að leiðin til jöfn-
unar lífskjara milli ein-
staklinga og landshluta lægi
i gegnum samvinnuhreyf-
inguna.
Steingrimur sagði, að um
þessar mundir væru eins
konar timamót í efnahags-
málum okkar. Núverandi
rikisstjórn hefði náð nokkr-
um árangri í glímunni við
verðbólguna; hún yrði rúm-
lega 40% á þessu ári, en
hefði stefnt í 70—80% fyrir
stjórnarskiptin í fyrra. Hins
vegar væri hætta á. að hún
ykist aftur í yfir 50% á
næsta ári, svo að enn þyrfti
að grípa til nýrra úrræða.
Steingrímur kvað skiljan-
legt, að ríkisstjórnir reyndu
eftir mætti að hamla gegn
neyðarúrræði eins og geng-
isfellingu, en lýsti þeirri
skoðun sinni, að dregið hefði
verið of lengi að aðlaga
gengið kostnaðarhækkunum
innanlands, og hefði það
valdið atvinnuvegunum
miklum erfiðleikum.
• Veruleg hækkun
fiskverðs
Varðandi ákvörðun fisk-
verðs um áramótin sagði
Steingrímur. að það hlyti að
hækka verulega. Væri það
ískyggileg þróun, þar sem
engin grein sjávarútvegsins
þyldi mikla hækkun. Um
veikari samkeppnisaðstöðu
okkar á erlendum fiskmörk-
uðum sagði hann, að styrkir
samkeppnisþjóða okkar til
sjávarútvegs væru verulegir,
en verið væri að athuga það
mál nánar og afla ná-
kvæmra upplýsinga um það.
• Of lág sölulaun á búvöru
Á fundinum kom fram, að
kaupfélagsstjórar og aðrir
forsvarsmenn samvinnu-
hreyfingarinnar telja, að
sölulaun á búvöru í smásölu
hafi um langt skeið ekki
nægt fyrir sannanlegum
dreifingarkostnaði. í tilefni
af því var svohljóðandi til-
laga samþykkt:
„Kaupfélagsstjórafundur
haldinn að Holtagörðum 20.
og 21. nóvember 1981 sam-
þykkir að fara þess á leit
við viðskipta- og landbún-
aðarráðherra, að þeir beiti
sér fyrir því innan ríkis-
stjórnarinnar að ákvörðun
um sölulaun á búvöru i
smásölu verði í framtiðinni
ákveðin af Verðlagsráði." ♦
G. Gr.
Séð yfir salinn í
Hoitagörðum, þar
sem kaupfélags-
stjórar hvarvetna
að af landinu eru
mættir til að bera
saman bækur sínar.
MYNDIR:
KRISTJÁN
PÉTUR
GUÐNASON
35