Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.04.1909, Page 7

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.04.1909, Page 7
75 ig, að þeirra eigiri ágóði af verzluninni yrði sem mestur. Hinu skeyttu þeir lítið, að innleiða nýjar og hentugar vörur, eptir hæfi landsmanna, eða efla vöruvöndun á báðar hliðar. Með stofnun kaupfjelaganna, og síðan smjörbúa og sláturhúsa, ásamt stórkostlega endurbættum samgöngum við umheiminn hefir verzlunin hjer á landi tekið ákaf- lega miklum breytingum. Nú eru það ekki lengur hinir útlendu selstöðukaupmenn sem hjer ráða, alfarið, lögum og lot'um í verzlunarmálum. Vjer höfum nú frjáls og bein viðskipti við útlönd, eða getum hæglega hagað svo ráði voru. Og það sem nú ræður aðallega verðlagi á hinum ýmsu vörum hjer á landi, er heimsmarkaðurinn. Um kaupfjelögin er það að segja, að þau eru, eða verzlun þeirra, eign þeirra manna, sem eru fjelagsmenn. Kaupfjelagið, eða stjórn þess, sem valin er af fjelags- mönnum sjálfum, ræður verðlagi á vörum fjelagsins og fer í þeim efnum eptir fyrirfram ákveðnum reglum, er settar hafa verið á fundum fjelagsins. það eru því fje- lagsmenn sjálfir sem bæði eru eigendur fjelagsverzlunar- innar og ráða, beinlínis og óbeinlínis, verðlaginu í fje- laginu. Fyrir því er þessi samkeppniskenning í sambandi við samvinnufjelögin alfarið óþörf, hvernig sem á málið er litið, eða öllu heldur skaðleg. Kaupfjelögunum er það hollast og bezt, að sem flestir skipti við þau, og kaupi hjá þeim allar sínar nauðsynjar, með öðrum orðum: verzli við þau að öllu leyti. Þetta er einnig hverjum ein- stökum fjelagsmanni fyrir beztu, þar sem hann er með- eigandi í kaupfjelaginu. Agóðinn af verzluninni lendir þá einn og óskiptur hjá fjelagsmönnum og það er eitt af aðalatriðum kaupfjelagsskaparins, og ein hin sterkasta máttarstoð hans. í sambandi við það, sem sagt hefir verið um verzlun kaupmanna er vert að geta þess, að síðustu árin hafa verið gerðar tilraunir til þess að stofna »miljónafjelög«

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.