Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.04.1909, Page 11
79
svipinn fyrir margan mann, að geta fengið verzlunarlán,
þegar mikið lá á. En óhætt mun að segja að almargir
eru þeir, sem alveg að þarflausu hafa notað sjer þetta
lánstraust sitt hjá kaupmönnum, til þess einkanlega, að
þurfa ekki að snara út vöxtum af lánsfje því, er þeir
annars þurftu á að halda. Menn hafa yfir höfuð að segja
litið svo á, að þessi verzlunarlán væru bæði hagkvœm
og ódýr, og þau virðast enda vera það, fljótt á litið. En
við nánari athugun mun það koma í Ijós, að svo er ekki
í raun og veru. Skal eg eigi, að þessu sinni.útlista það
nákvæmlega, en að eins benda á þetta: Kaupmaðurinn
verður að sjá svo til að hann fái vexti af útlánsfje sínu,
og þá helzt ríflega, sökum áhættunnar, og vexti þessa
er varla annarstaðar að fá en hjá lántakendum, á ein-
hvern hátt. Lánþeginn er staðbundinn með viðskipti sín,
og getur því optlega farið á mis við ýmislegan verzlunar-
hagnað fyrir þær sakir, og þar við bætist enn, eptir vana-
legum hugsunargangi manna og óvarfærni, að þegar nær
því altaf er »tekið út< í skuldarreikning, þá hættir mönn-
um við því að láta fjölina fljóta«, optlega án þess að
grennslast eptir því, hvernig skuldin vex miklu hraðari
stigum en kraptarnir til greiðslunnar heima fyrir.
F’á er þess að gæta, þegar um bændur er að ræða,
að verzlun þeirra er tíðast bundin við vissa árstíma.
F’annig er því varið með sveitabændur, að verzlun þeirra
fer aðallega fram vor og haust. F*á selja þeir sínar vör-
ur, eða fá þær borgaðar, svo sem ull, smjör, kjöt og fl.
Ef þeir því þurfa að útvega sjer vörur til heimila sinna,
á öðrum tímum ársins, einkum að vetrinum til, þá verða
þeir opt að fá þær að láni, t. d. fram í næstu vorkaup-
tíð. Af þessu leiðir að bezt mundi að kveða svo á í lög-
um fjelaganna, eða reglugerðum þeirra, ellegar annars
semja svo um við bændur, að þeir jafnan borguðu upp
skuldir sínar tvisvar á ári. Jafnframt þessu mundi það
tryggilegast, að kveða svo á, að hæfilegir vextir væru
greiddir af öllum lánum, er menn fengju í fjelögunum,