Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.04.1909, Qupperneq 40
108
Borgarfjarðarsýslu reka flestir til Reykjavíkur. Fjeð, sem
slátrað var, var fiest dilkar, því sauðaeign hjer er að
mestu að Ieggjast niður.
Eptir verðlagi því sem á fjeð var sett gerðu afurðir
þess:
Kjöt..........................................Kr. 44,767.96
Gærur.......................................— 8,780.40
Mör.........................................- 3,986.75
Slátur......................................- 5,892.76
Samtals . . . Kr. 63,427.87
Verðlagið, sem á afurðirnar var sett, var þannig:
Dilkakroppar 28 pd., veturg. 35 pd. og
sauðakroppar 40 pd. og yfir . . . . pd. á kr. 0.23
Dilkakroppar 22 — 28 pd., veturg. 30 — 35
pd. og sauðakroppar neðan við 40 pd. — - — 0.21
Dilkakroppar neðan við 22 pd., veturg.
neðan við 30 pd. og ærkroppar . . . — - — 0.19
Kjöt af graslömbum og mögru fje . . . — - — 0.15
Gærur.................................— - — 0.20
Mör...................................— - — 0.25
Slátur kr. 0.75 til 1.50 hvert.
Af þessu verði hafa fjelagsmönnum verið útborgaðir
*ls hlutar en '/s hlutinn stendur enn inni og gengur,
sennilega, eitthvað af honum upp í kostnað. Að líkind-
um verður þó talsverður hluti hans borgaður síðar út.
Petta má óhætt telja góð afdrif, þegar miðað er við
almennt verðlag hjá kaupmönnum á sama tíma. Verð-
lagið hjá þeim má fullyrða að var eigi hærra, í nálægum
kauptúnum, en sem svarar þeim *ls hlutum, sem þegar
hafa verið útborgaðir í sláturfjelaginu.
Kjötverðið hjer var tveim aurum lægra á hverju pundi
en á sláturhúsinu í Reykjavík, og samt má vel við verð-
ið una í sjálfu sjer. Austursýslubúar voru, sem sje,