Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.04.1909, Qupperneq 41
109
hræddir um að kostnaðurinn á sláturhúsinu hjer yrði
hlutfallslega meiri en við aðalhúsið í Reykjavík, sökum
flutningskostnaðar suður og af fleiri ástæðum, og var
því fallizt á þennan mismun á kjötverðinu í þetta skipti.
Annars eru menn mjög óánægðir með verðmuninn og
telja hann alveg ósamræmanlegann við fjelagshugmynd-
ina, þar sem bæði sláturhúsin eru háð sömu skyldum
og bæði miða til þess að efla sameiginlega fjelagshags-
muni, enda verður hann, að líkindum látinn niður falla,
þegar á þessu ári.
Forstjóri sláturhússins hjer er Hjörtur kennari Snorra-
son á Skeljabrekku, en slátrarinn var Tómás Tóinásson,
yfirslátrari fjelagsins.
Almennt talið munu menn vera mjög ánægðir með
fjelagsstofnun þessa. Ró hefir brytt á lítilsháttar óánægju
hjá sumum fjelagsmönnum, eins og optast vill brenna
við. Orsakirnar til óánægjunnar liggja naumast í fjelag-
inu sjálfu, heldur í hinu, að verðfall bar að höndum á
sama tíma, ervilt var að ná í peninga, og öll verzlun
var mönnum óhagstæð. Pessu blanda sumir saman, þó
alveg ósamkynja sje, og hafa allt á hornum sjer, þegar
eitthvað blæs á móti.
Annars skilja menn vel þennan fjelagsskap og nytsemi
hans; eru því allar horfur með því, að hann eigi hjer
góða og örugga framtíð. Sú hugsun hefir vaknað, að
sameina sláturfjelagið og kaupfjelagið hjer, því óþarfi
virðist að hafa svona skyld fjelög aðskilin, en samein-
ingin gæti orðið til hægðarauka og stuðnings á ýmsan hátt.
J. B.
8. Maí 1909.