Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.04.1909, Síða 43
111
lagi, en samt engan ágóða fengið, ættu að geta verið
ánægðir með fjársöfnunaraðferðina í samvinnufjelaginu?
Nei, slíku er ekki almennt að heilsa. F*eir eru margir
sem hvorki vilja Ieggja fje fram til stofnsjóðs, nje held-
ur láta ágóða sinn ávaxtast í fjelaginu. Óðara en búið
er að skipta ágóðanum á pappírnum, hleypur hver í
kapp við annan til þess að fá sinn skerf útborgaðan;
það er því líkast að þeir sjeu hræddir um, að annars
komi hann eigi í tæka tíð til eyðslunnar. Hvað skyldu
þessir »ágóðaveiðimenn« hugsa sjer að fjelagið, í heild
sinni, eigi að hafa fyrir veltufje. Er ábyrgðartilfinning
þeirra og sjálfsmetnaður af svo skornum skamti, að þeir
vilja sjálfir að eins njóta ávaxtanna af samvinnunni en
láta hina samverkamennina sjá eina saman um meðölin
til fjelagsframkvæmda?
Því fer betur, að þessu er í raun og veru ekki þannig
háttað. í flestum tilfellum er hjer athugaleysi og skiln-
ingsskorti um að kenna. Hver einlægur og skilnings-
glöggur samvinnufjelagsmaður má þvi eigi vanrækja það
þýðingarmikla hlutverk sitt, að láta í tje, bæði í ræðu
og riti, þá fræðslu og upplýsingar, er með þarf, til þess
að hver einasti fjelagsmaður skilji sína fjelagslegu köllun
gagnvart sönnum eigin hagsmunum og sameiginlegum
þrifum fjelagsins í heild sinni.
í þessum atriðum eru Englendingar komnir lengst á
veg, eins og í svo mörgu öðru. þeir geta stundum, í
kaupfjelögum sínum, skipt á meðal fjelagsmanna 12—15 %
í árságóða. Þetta er meðal annars því að þakka, að
hverjum fjelagsmanni er skylt að leggja fram 54 kr. til
veltufjár og fjöldi manna bætir þar miklu við af eigin
hvötum. Auk þessa hafa þeir öfluga varasjóði.
í Rochdalefjelaginu gamla eru nú um 13,000 kaupfje-
lagsmenn og á hver þeirra, að meðaltali 385 kr. í stofn-
sjóði. í ensku samvinnufjelögunum teljast nú um 2'h
miljón fjeiagsmanna, og á hver þeirra, til jafnaðar, um