Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.04.1909, Page 8

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.04.1909, Page 8
76 af erlendum mönnum með útlendu fje. Tilgangurinn með þessum fjelagsskap er sá, að ná föstum tökum og yfirráðum á verzlun landsmanna, eða einstökum grein- um hennar, að minnsta kosti.* Þetta er mjög athugavert tímans tákn, og boðar illt eitt. Að vísu hefir fjelagsskap þessum, hingað til, eigi farið vel að stofni, en talsverð- ar horfur eru þó fyrir því, að hann magnist og vinni hjer land, meira eða minna, ef menn gjalda eigi fullan varhuga við. Allmikil áherzla hefir verið lögð á það að ná tangarhaldi á verzluninni, og eitt fjelagið hefir þegar keypt upp margar verzlanir víðs vegar hjer á landi. Ein þýðingarmikil vörutegund, sem hingað flyzt, er þegar í hershöndum. Jeg á hjer við steinolíuna. Er nú eigi útlit fyrir annað en að járngreipar auðvaldsins ætli að hremma hana, eða ná til sín allri sölu á henni, hjer á landi. F*etta er mjög hættulegt og afleiðingarnar eru þegar teknar að koma í ljós. Hjer er þvi um mikilsvert verk- efni að ræða fyrir kaupfjelögin. Því eina ráðið til þess að stemma stigu auðvaldsins er öflugur og eindreginn fjelagsskapur og samtök almennings. Pess vegna er það> þegar af þessari ástæðu nauðsyn og skylda, að hlynna sem mest að kaupfjelagsskapnum og efla hann á allar fundir. Jafnvel löggjöfin ætti að skerast hjer í leikinn og búa til lög, sem tryggðu kaupfjelögin á ýmsan hátt. * * * IV. Meginatriðin í tilgangi kaupfjelaganna eru eða eiga að vera þessi: 1. Að kaupa inn vörur fyrir borgun út í hönd. 2. Að afnema alla skuldaverzlun. * Sbr. I. hepti þ. á. Bls. 55. S. /.

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.