Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.04.1909, Side 38

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.04.1909, Side 38
106 skiptalíf þarf tiltrú, og verzlun landsins er í voða, ef hún er eyðilögð. Bændur mega eigi hlaupa úr ein- um stað í annan til verzlunar, og skilja eptir skuldir í hverju spori. 12. Hrein og ráðvönd viðskipti í hvívetna, skyldurækni og drengskapur verður að ritast á verzlunarfána vorn framvegis, og allir að bera alvarlega lotningu fyrir þeim orðum og framfylgja þeim með trú- mennsku . . . Að svo mæltu legg jeg frá mjer pennann, óskandi samvinnufjelagsskap vorum góðs gengis, og að það verði hann, en ekki miljónafjelögin, sem mestu verður ráðandi framvegis um viðskiptahagi þjóðar vorrar. II. Sláturhúsið í Borgarnesi. í lögum »Sláturfjelags Suðurlands« var, þegar í byrjun, gert ráð fyrir því, að setja á stofn sláturhús í Borgar- nesi, sem yrði þá útbú frá aðalsláturhúsinu undir sömu yfirstjórn. Hluttaka Mýramanna í sláturfjelaginu varð lítil, fyrsta árið. Mönnum þótti fyrirhafnarsamt og það valda rýrnun á fjenu, að reka það til Reykjavíkur, en voru hins vegar vanir fremur hægum kaupstaðaraðdrátt- um. Samt vaknaði fljótlega talsverður áhugi fyrir slátur- húsbyggingu í Borgarnesi og mun kaupfjelag hjeraðsins hafa átt mikinn þátt í því. Björn Bjarnarson frá Grafar- holti ferðaðist um sýsluna; hjelt hann fund í hverjum hreppi til að ræða um bygging sláturhússins. Við það óx áhugi manna og flestir bændur skrifuðu sig fyrir hluttöku í siáturhúsbygging í Borgarnesi. Þessu næst var haldinn almennur fundur fyrir sýsluna í Borgarnesi til að ræða málið. Meðal annara mætti þar formaður sláturfjelagsins: Ágúst Helgason frá Birtinga- holti. Hafði hann leitað fyrir sjer um peningalán í Reykja-

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.