Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.04.1909, Page 46

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.04.1909, Page 46
114 kaupendum til, vörurnar fengu að liggja óseldar, og peningarnir komu eigi í skúffuna. Eigi svo sjaldan hefir það enda komið fyrir, að forstjórar fjelagsins hafa, í þessu efni gengið í fararbroddi; en þess konar starfs- inenn ættu sem fyrst að víkja úr sætum sínum. Það er því eigi vert að eggja nokkurn mann til þess að ganga inn i samvinnufjelag, og enn þá síður er það hyggilegt að byggja nokkuð á fjelagslegri starfsemi hans, fyr en vissa er fengin um það, að honum sje það nægi- lega ljóst, hvaða skyldur hann um leið leggur sjer á herðar. Pað er því tryggara og um Ieið áhættuminna að hafa fjelagsbyrjunina sem einfaldasta og útbrotaminnsta, með nokkrum fáum og skylduræknum fjelagsmönnum, heldur en að leggja á stað með mikið veltufje, mjög inarga yfirskynsfjelaga, fjölda af starfsinönnum, miklar og margbreyttar vörubyrgðir, og þar fram eptir götunum. það er opt örðugt að minnka seglin og bæta upp skaða þann sem óþarflega dýrt fyrirkomulag hefir bakað fjelagsskapnum, og sem hefir vakið hugleysi og van- traust hjá fjelagsmönnum. Aptur á móti reynist það jafnan auðvelt, að færa út kvíarnar og gera þær endur- bætur á fjelagsframkvæmdum sem nauðsyn krefur, sök- um aukinna viðskipta og vaxandi samvinnu fjelagsmanna. 3. Samanburður. (Kooperat. ’08. Nr. 3.) í kaupfjelagsblaði einu á Svisslandi er, í stuttu máli, leitast við að svara spurningunni: Hvers vegna eiga neytendurnir að framkvæma vörukaup sín hjá kaupfje- lögum, en ekki kaupmönnum? Pað, sem blaðið segir um starfsemi kaupfjelaganna, er prentað hjer í níu töluliðum, og hitt í jafnmörgum á eptir, er kaupmennskunni lýsir. 1. Kaupfjelögin geta, sökum viðskiptafestu fjelagsmanna, haít meiri viðskiptaveltu en kaupmennirnir yfirleitt.

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.