Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1921, Blaðsíða 12

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1921, Blaðsíða 12
118 Tímarit íslenskra samvinnufélaga. Sérstök nefnd þarf að inna þetta starf af höndum. Menn rnega ekki láta sér hugkvæmast, að hér sé um hégómamál að ræða. Meðan ekki er eftir því leitað, geta leynst þeir smíðisgallar í þessari veglegu bj7gg- ingu, sem geta, þegar á reynir, komið í ljós á þann liátt, sem við mundum síst kjósa. Eg vil nú til málamyndar gera grein fyrir þeim liöfuðmismun á þessum tveimur skipulagsformum, sem mér virðist skifta mestu máli. En það er skifting fé- lagsins í deildir með samábyrgð innan deilda annars vegar. Hinsvegar félagið ein deild með samábyrgð innan alls félagsins. Langerfiðasta viðfangsefnið í rekstri karipfélaga er vafalaust skuldatryggingin. Þetta vandasama og ábyrgðarmikla viðfangsefni er i Kaupfélagi Þingeyinga fengið í hendur mönnum, sem hver í sínu bygðarlagi hafa sérstaklega góða aðstöðu, til þess að láta það fara sér vel úr hendi. Hann. getur á hverjum tíma haft glögt yfirlit yfir efni og ástæður hvers rnanns innan sinnar deildar. Hann stendur heldur ekki einn uppi með þenna vanda. Samdeildarmenn hans hafa ákvörðunarréttinn, til þess að setja skuldaskiftum einstakra manna liæfileg- ar skorður. Hann hefir því á bak við sig samúð eða andúð samdeildarmanna, þegar ráða þarf fram úr vafa- sömum atriðum. Utkoman verður ekki sú, að skuldirnar verði minni, en á bak við hverja skuld, standa jafnan ein- hverjar skynsamlegar líkur fyrir því, að’ sá, sem skuldar, geti með tíð og tíma orðið efnalega sjálfstæður. Þessar líkur eru bygðar á nákvæmri þekkingu á högurn mannsins og háttum, eðli hans og aðstöðu. í Rochdalefélögum er þessi mikli vandi 1 a g ð u r á herðar einum manni — framkvæmdarstjór- anum. Þunginn, sem á þessum manni hvílir, er að því skapi meiri, sem félagið er stærra en deildin. Að öðru leyti er aðstöðumunur hans ög deildarstjórans ákaflega

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.