Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1921, Side 28
134 Tímarit íslenskra samvinnufélaga.
. „Undir hærra verðlaginu veitist kaupmönnum bæði
auðveldara og útlátaminna að undirselja kaupfélögin“,
segir höf. — Mikið rétt! — En þá hafa þeir líka minni
ástæðu og hvöt til þess, af því að hærra verðið er
ekki bein árás á verðlag þeirra, en það er lægra verð-
lagið. Þá er viðskiftakepni kaupmanna og kauptelaga
líkari því, sem kepni kaupmanna er innbyrðis.
Agreiningurinn er þá að eins um það, hvor verð-
lagsmátir.n leiðir frekar til umræddra samkepnisbragða
og verður hver að meta það þann veg sem líklegra
þykir, enda skiftir þetta atriðið minstu máli.
Á einum stað má skilja ummæli höf. svo sem hann
viðurkenni skoðun mína á þessu atriði. Hann segir svo:
„Besta úrlausnin um þetta deiíuatriði fæst þó þar sem
kaupfélög starfa með því skipulagi, að hafa allar stærri
og sjálfsögðustu nauðsynjavörur með kostnaðarverði í
„pöntunardeild“, en aðrar vörur með gangverði í „sölu-
deild“. Þar er reynslan sú, að félagsmenn kosta kapps
um að taka allar vörur, sem í pöntunardeildinni eru
hafðar, einmitt þar, þ ó vitanlegt s é, a ð á þ e i m
e r li v e r v e t n a m e s t r e y n t a ð g e r a að „u n d-
i r s ö 1 uUl).
Ilér liggur fvrir viðurkenning höf. á því, að á vör-
um, sem verðlagðar eru á lægra verðstiginu, sé „hver-
vetna mest reynt að gera að undirsölu“.
Þessu næst lieldur- höf. áfram rökleiðslu sinniþannig:
„en þeir, sem nokkuð eru á svellinu lausir, skeyta alt
minna um, þó þeir hafl hin önnur viðskiftin við kaup-
menn, enda þótt um töluverðar fjárhæðir sé að ræða,
og þó þeir séu undir félagsskyldum livort sem er. Aðal-
áhuginn er um pöntunarviðskiftin. „Af hverju kemur
það?“
Reyna má að svara þessari spurningu, eða benda á,
') Auðk. af mér.