Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1921, Side 30
136
Tímarit íslenskra samvinnufélaga.
þriggja kaupfélaga, K. Þ., K. E. og K. H., og munu
þau — sum að minsta kosti — ekki vera talin þau
hugsjónalægstu. Verður ekki af stefnuskrá þeirra ráðið,
að þau liugsi sér, að vinna jafnt að umbótum versl-
unarhátta utanfélagsmanna sem félagsmanna. Hitt er
annað mál, að þau geta ekki unnið svo að umbótum
verslunarhátta sinna eigin félagsmanna, að utanfélags-
menn njóti þess ekki að nokkru. Má í því sambandi
minna á vöruvöndun og markaðsumbætur á íslenskum
vörum, sem viðurkent er, að félögin hafa mjög unnið
að, til hagsbóta allri alþýðu.
Skyldi félögunum með réttu verða brugðið um sið-
mætisskort með meiru, þótt þau undanskilji frá jafnri
hlutdeild við utanfélagsmenn nokkurn hluta af þeim
verslunarhagsbótum, sem af starfsemi þeirra leiða, í
því skyni, að tryggja og efla framþróun félagsskapar-
ins sjálfs, og ná þannig til umbóta almennra verslunar-
hátta? — Skyldi kaupfélagsskapurinn verða hugsjóna-
hærri fyrir það, þótt hann láti vaxa í skjóli sínu þann
hugsunarhátt, sem lýsir sér í því, að vilja draga til sín
hagnaðinn af kaupfélagsstarfseminni, án þess að leggja
stefnunni og starfseminni nokkurt lið? — Pélögin úti-
loka engan frá að njóta hagnaðarins af starfsemi sinni,
sem ganga vilja undir merki þeirra. Yfir hverju geta
utanfélagsmenn þá kvartað?
Um leið og höf. viðurkennir að lægra verðstigið
leiði til þess, að hægt sé að njóta félagshagsmuna utan
félaganna, gefur hann í skyn,- að fyrir þeim, sem vilja
að félögin starfi á grundvelli hærra verðstigsins, vaki
það e i 111), að hafa persónulega hagsmuni. — Með
framansögðu er sýnt, hversu fráleit þessi skoðim er.
í fyrri grein minni mintist eg með alménnum orð-
um á ábyrgð og skyldur félagsskaparins. I penna höf.
') Auök. af honum.