Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1921, Blaðsíða 13

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1921, Blaðsíða 13
Tímarit íslenskra samvinnufélaga. 119 mikill. Hlaðinn störfum allan daginn og fram á nætur, getur hann ekki veitt sér þá kynningu af högum og háttum hvers félagsmanns sem skyldi. Því síðui' getur liann notið aðstoðar félagsmanna sinna við úrskurð á vafasömum atriðum. Hann verður því mitt í dagsönn- um að vera reiðubúinn að fella liinn vandasamasta dóm, þegar lítið þektur og skuldugur maður leitar á náðir hans. Dóminn verður hann að fella á eigin ábyrgð. Og dómurinn þarf að vera réttlátur. Tvenskonar gagn- stæð ábyrgð þrýstir á hann. Ábyrgð gagnvart félaginu og ábyrgð gagnvart manninum. Hann verður því þarna eins og milli steins og sleggju. Engir nema afburða- menn geta risið undir þeim vanda, sem skuldatrygging í stóru Rochdalefélagi leggur þeim á herðar. 1 hverri deild í Kaupfélagi Þingeyinga hafa deild- armenn, eins og áður er sagt, ákvörðunarrétt um það, að livc miklu þeir vilja taka sér á herðar ábyrgð af skuldum einstakra manna, sem eiga erfitt uppdráttar. Með þessum ákvörðunarrétti er samvizka þeirra og mannúðartilfinning dregnar fram í dagsbirtuna. í hlut á samsveitungi þeirra og félagi, sem á erfitt fyrir, en hefir, ef til vill, bestu viðleitni, að reynast skilamaður og koma fyrir sig fótum. Hér er þá sú spurning lögð fyrir hvern einstakan deildarmann: Viltu vera með í því, að lyfta undir byrði náunga þíns, rneðan hann er að hafa sig á fætur? Þeirri spurningu verður því nær alt af svarað á einn veg. Samdeildarmennirnir bera þolinmóðir ábyrgðina, þar til fram úr rakiiar og skuldin greiðist, eða þá að sá, sem í hlut á, veltur með öllu um hrygg. Jafnvel þá er ekki ástæða til að æðrast. Deildarmenn hefðu hvort sem var orðið fyrir þessum halla að einhverju leyti í auknum sveitargjöldum. En þeir hafa leitast við að forða þessum manni frá ógæfunni. Sjaldgæft mun það vera, ef ekki dæmalaust, að meðal- menn, hvað þá þeir, sem meira geta talist, hafi sig ekki

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.