Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1921, Blaðsíða 15

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1921, Blaðsíða 15
Tímarit íslenskra samvinnufélaga. 121 þ e i r r a r á b y r g a r, s e m f é 1 a g s m e n n li a f a t e k i ð s é r s j á 1 f i r á h e r ð a r, a 1 d r e i f 1 a 11 u p p á þ á. A þenna hátt er hverjum einstaklingi lögð á herðar ábyrgð og fengin jafnframt í hendur ákveðin hlutdeild í því, að sjá félagsskapnum borgið. Rochdale-félag fer á mis við alt þetta. Þunginn og ábyrgðin hvílir á miðpunkti, orsakar í stórum félögum ofurþunga og hlýtur að skapa meiri og minni harð- stjórn. Gfnmdvöllurinn verður á hverjum tíma að því leyti ótryggari, sem hann er minna þektur af þeim sem á honum verða að byggja. Ef ábyrgðin kemui niður á einstaklingunum, kemur hún fiatt upp á þá, af því að þeir hafa engu ráðið um stærð hennar, né tekið sér hana á herðar með ráðnum hug í hverju einstöku tilfelli. Hlutdeild hvers manns í því að tryggja grund- völl félags síns verður minni. Hann lítur á sjálfan sig fremur sem sjálfstæðan aðila gagnvart sínu eigin fé- lagi, heldur en sem lifandi grein á stofni. Þroskunin, sem samvinnufélögunum er ætlað að vinna, er síður knúin fram af sjálfu skipulaginu. Munurinn á þessu tvennskonar skipulagi er þá að mínum dómi í stuttu máli þessi: Annað er algert lýð- stjórnarfyrirkomulag, sem veitir félagsmönnum fyllri ákvörðunarrétt og rneiri hlutdeild í þroskandi samstarfi. Hitt er að vísu lýðstjórnarskipulag en ekki eins algert. Hvað skuldatrygginguna snertir, hvílir annað á breið- um grundvelli og tryggir sjálft sinn grundvöll um leið og það gefur einstaklingunum yfirlit yflr þá ábyrgð, sem á þeim hvílir. I hinu hvílir skuldatryggingin á miðpunkti. Að þessu leyti er þingeyska skipulagið eins og pýramíði, sem hvílir á breiðum grunni. Mér virðist að það félag, sem hvílir á liinum breiða grunni, muni lítt síður haggast þó á kunni að bjáta. Abyrgðin er borin uppi af mörgum, sem skilja eðli hennar

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.