Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1921, Side 18
124 Tímarit íslenskra samvinnufélaga.
verið að glíma við á undanförnum fjörutíu árum. Þessir
menn breytast eða eldast úr lest, en í skörðin koma
æskumenn þeirrar þjóðar, sem er á framsóknarleið.
Enginn foringi leiðir fram til sigurs þann her, sem
er sjálfum sér sundurþykkur og veit ekki til hvers er
barist. Barátta okkar á ekki að vera háð eingöngu
gegn keppinautum okkar. Tilveruréttur þeirra stendur
í öfugu hlutfalli við gildi þess málstaðar, sem við berj-
umst fyrir, og skilning okkar á því hlutverki, sem
fram undan er. Baráttan er háð gegn okkar eigin van-
þroska, svo við lærum að standa hlið við hlið, hvað
sem yfir dynur, og að við skiljum gildi þess handtaks,
sem stofnað hefir verið til á tímum neyðarinnar og
sem verður því meir að traustataki, sem á reynir.