Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1921, Blaðsíða 20

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1921, Blaðsíða 20
126 Tímarit íslenskra samvinnufélaga. þá jöfnum höndum að þeim rökum, sem eg fœrði fram fyrir yfirburðum þess og ýmsum öðrum rökum, sem hann veit hafa verið fyrir því færð, senniiega ýmist munnlega eða í riti. Finn eg mér ekki skylt, að taka ábyrgð á öðrum ummælum um þetta mál en mínum eigin. Höf. kvartar um, að eg hafi ekki gert ágreinings- skoðun við sig nema um eitt atriði, og með því sniðið sér of þröngan umræðustakk. — Það er rétt, að í grein minni kemur ekki fram verulegur skoðunarmunur við höf. nema um verðlagningarmátann. Hvorttveggja er, að hann getur staðið einn sér óflæktur við önnur skipu- lagsatriði, og hinsvegar hugði eg glöggast, að meta hann einan sér. Eg þykist geta yfir ýmsu kvartað í málameðferð höf., eigi síst því, að hann fléttar óskildum atriðum saman við verðlagningarmátann, og sníður þannig víð- ari stakk, en þörf er á, til að ræða þetta mál. Þarf nokkuð fyrir að hafa, að skilja hin óskildu atriði frá. Málefnisins vegna þykir mér rétt að taka upp glófa höf. að þessu sinni, svo að jafn oft sé kvatt hljóðs fyrir hvorn málsstað. Mun eg þá fylgjast með málsmeðferð höf., og ræða hin einstöku atriði að mestu leyti í sömu röð og hann hefir sett þau fram. I. Það er fernt, sem höf. telur kostnaðarverðsskipu- laginu og „pöntunarfélögunum“ óaðskiljanlega til gildis fram yfir gangverðsskipulagið: 1. Að nafnbundin fyrirframpöntun á aðalnauðsynj- um geri viðskiftin ábyggilegri og tryggari, bæði út á við og inn á við. 2. Að það dragi úr, eða jafnvel útiloki, hagnað af viðskiftum utanfélagsmanna, sem kaupfélögunum sé

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.