Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1921, Blaðsíða 26

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1921, Blaðsíða 26
132 Tímarit íslenskra samvinnufélaga. sem vandi er að sjá fyrir, og þó auðvitað því að eins vandi, að forráðamennirnir séu ekki alfullkomnir. En jafnvel venjulegan kostnað getur verið erfitt að sjá ná- kvæmlega fyrir, ef gera má ráð fyrir að forráðamönn- um geti verið að einhverju áfátt í „þekkingu ogreynslu11. Mér er það óráðin gáta livað þarf að óttast við að taka kostnaðarverðsskipulagið bókstaflega; því síður skil eg, hvernig hægt er að taka það „of bókstaflegau. Ef það er svo ágætt, sem af er látið, þá sýnist sem það ætti að njóta því betur kosta sinna, sem það er tekið bókstaflegar. — Nei, tilgáta höf. um ótta minn við kostnaðarverðsaðferðina er ekki rétt. Eg er alls ekki hræddur við að taka aðferðina alveg bókstaflega, en eg óttast að út af því geti borið að hægt sé að f r a m- fylgja henni nógu bókstaflega. Það er of ureðlilegt. Aðferðin setur verðið fyrirfram á þau takmörk, sem ekkert má út af bera að lendi of lágt, til þess að ver fari. En ef ofhátt verður, þá kemur fram heimildarlaus verðafgangur, en liætta stafar engin af því; enda er þá farið að nálgast gangverðið og er þá svo dregið saman með aðferðunum, að ástæðulaust er að vera að deila um það sem á rnilli ber. — Það, að sjá í einu lagi og þar með glöggar hagn- aðinn af félagsskapnum, er í penna höf. sarna sem að telja verðuppbótina eða hæð hennar óyggjandi mæli- kvarða á hagsmunagildi kaupfélagsviðskifta. Því næst bent á að með verðlagningunni megi skapa svo háa uppbót sem vera vill, og gefi það enga sönnun um hina raunverulegu hagsbót, en færi kaupmönnum gegnd- arlausan gróða á kostnað viðskiftamanna þeirra. Játað er að lokum að verðuppbótin sé þó einhæft vitni um uppbótina. Gagnvart þessu má segja að verðuppbótin er jafn óyggjandi vitni, hvort sem meira eða minna þarf fyrir að hafa, að sjá hver hún er, hvort sem hægt er að

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.