Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1921, Page 33

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1921, Page 33
Tímarit íslenskra samvinnufélaga. 139 Með orðunum: „hagsmunalegs eðlis fyrir félögin“ býst eg við að höf. eigi við það sama sem eg hefi nefnt: vöxt og gengi félaganna, og er þá ekkert við þau að athuga. Hitt kannast eg ekki við, að hafa talið gang- verðsskipulagið hafa hagsmunalega þýðingu fyrir félags- menn sem einstaklinga, enda hefir hún það ekki svo nokkru nemi, og að því leyti sem það er, þá er það á öfuga hlið. Má reyna að skýra það með dæmi. Setjum að hlutur í kaupfélagi kosti, með kostnaðarverðsálagn- ingu, 1 krónu, með sennilegri gangverðsálagningu kr. 1,10 og með álagningu „út í öfgar“ kr. 1,20. í fyrsta dæminu greiðir félagsmaðurinn fyrir hann 1 kr. á því ári, sem hluturinn er tekinn. í öðru dæminu greiðir hann kr. 1,10 á því sama ári, en fær kr. 0,10 endur- greidda á næsta ári. I þriðja dæminu greiðir hann kr. 1,20 en fær endurgreitt næsta ár kr. 0,20, með öðrum orðum, hann greiðir að lokum jafnt í öllum dæmunum. Alyktanir höf. um einkahagsmuni félagsmanna af hærra verðlaginu —- hér og annarsstaðar — eru því á engum rökum bygðar. Ummæli höf. um skerf af utanfélagsviðskiftum koma því að eins til greina, að félögin hafi nokkur utanfé- lagsviðskifti, en það er óháð verðlagsmátanum eins og fyr er sýnt. Til frekari lýsingar á afieiðingunum bætir höf. við síðar: „af frekari beiting einkenna hennar (þ. e. gang- verðsreglunnar) leiddi, að kaupm. gætu í skjóli félag- anna rist óhæfilega breiða lengju af hrygg almennings11. Um þetta erum við að því leyti sammála, að eg viðurkenni að með gangverðsskipulaginu setji kaupfé- lögin kaupmönnum ekki eins þröngan kost um verð- lagið. En auðvitað setur samkepni félaganna kaup- mönnum fijótt takmörk um verðlagið, og það enda þótt þau sjálf færu með afhendingarverð sitt út í öfgar“, því sannvirðið er það sarna, hvert sem afhendingar-

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.