Andvari - 01.04.1962, Blaðsíða 8
LÁRUS SIGURBJÖRNSSON:
,Sullað saman í jólafríi'
Hnýstst í s\öpunarsögu þjóðarlei\s.
I
Höfundurinn fer ekki sérstaklega virðulegum orðum urn frumsmíð sína.
Aðeins nokkrum vikum eftir frumsýningu verks, sem „gerði hvínandi lukku".
Hann segist hafa „sullað eða skrúfað saman leikriti í jólafríinu", á öðrum stað
segist hann reyndar liafa byrjað á verkinu að áliðnu hausti. Hvað um það, í
hvert sinn, er Skugga-Sveinn birtist á leiksviðinu, gerir hann hvínandi lukku,
í Halapakkhúsi, í Þjóðleikhúsi.
Hvemig stendur á þessum töfmrn leiksins? Hann er svo sem ckkcrt meist-
araverk. Indriði Einarsson féll alveg fyrir honum, þegar hann sá hann fyrst
leikinn. Það var önnur gerð leiksins, sem Indriði sá. og þá var hann sjálfur
ungur að árum. Með vaxandi smekk og þroska studdi hann hikandi hendi að
sýningu leiksins hjá Leikfélagi Reykjavíkur, aldrei fullkomlega sáttur við þann
þjóðardóm, sem dæmdi Skugga-Sveini öndvegissæti hjá lcikmenntum þjóðar-
innar. Og höfundurinn sjálfur, síra Matthías Jochumsson, fann ástæðu til þess
að umrita leikinn hvað eftir annað. Tvær leikgerðir eru kunnar, almennings-
eign í prentuðum bókurn 1864 og 1898, um tvær aðrar er vitað, frumgerðina
sýnda í febrúar 1862 og þriðju gerðina sýnda 1873. Það er frumgerðin, sem
vekur forvitni, aðdragandi hennar og upphygging. Þar hefur verið borinn að
sá neisti, sem lifir á hverju sem gengur með efnið, bylt til, úr dregið, útfyllt
°g prjónað við. Höfundur hefur sjálfur lagt sig fram um breytingamar, en
leikstiórar hafa líka þótzt þess umkomnir að betrumbæta leikinn og leikendur
hafa lagt sitt til skemmtilegheitanna. Þrátt fyrir allar misþyrmingar viðvaninga
jafnt sem lærðra leikara heldur Skuggi velli.
Það er ekki svo fráleitt að ganga út frá því, að „sullið" í jólafríinu 1861
hafi verið samansett eftir sérlega kröftugri forskrift. í söguköflum af siálfunr
sér segir Matthías líka afdráttarlaust hvaðan sterkustu áhrifin komu. „Ég bjó
í sama húsi (næst Klúbbnum) og Sigurður málari. Var þar og Jón Árnason
bókavörður — báðir gagnteknir af íslenzkum fróðleik". Húsið næst Klúbbnunt