Andvari - 01.04.1962, Blaðsíða 28
26
SVEINN SKORRI IIÖSKULDSSON
ANUVARI
„Islenzka: dáv.; lat. munnk: ág.; lat. skrif].:
dáv.; gríska: dáv.; trúbr.: dáv.; sagnfræSi:
dáv.; talfræði: ág.; rúmmálsfr.: ág.; eSlis-
fræSi: ág.; enska: dáv.; frakkneska: dáv.“
f aSaleinkunn blaut hann mjög háa I.
einkunn, 97 stig.1) Er óhætt aS fullyrSa,
aS Hannes naut um þessar mundir
óskiptrar hylli skólabræSra sinna og læri-
feSra. f þann tíma var venja aS skrá í
skólaannál lýsingar á brautskráSum stúd-
entum, og segir þar um Efannes:
„Gildur meSalmaSur á hæS, herSa-
breiSur og íturvaxinn, fríSur sýnum og
höfSinglegur. GáfaSur í bezta lagi og
vel aS sér í námsgreinum, en stundaSi
ekki eitt öSru fremur. Skáldmæltur vel
og orSheppinn. Mikils metinn af skóla-
bræSrum sínum; góSur reglumaSur."2)
AS loknu stúdentsprófi fór Hannes
norSur aS SySra-Laugalandi aS kveSja
móSur sína og systkini, áSur en hann
héldi til háskólanáms í Kaupmannahöfn.
HafSi hann þar skamma sumardvöl og
sigldi meS Arcturusi frá Akureyri 8.
ágúst.3) Hann innritaSist í Hafnarhá-
skóla 30. september.
Bertel Þorleifsson hafSi hafiS háskóla-
göngu sína haustinu áSur og átti nú heima
á GarSi í herbergi nr. 10 á þriSja gangi.4)
Fluttist Hannes fyrst til bans, en flestir
stúdenta bjuggu þá tveir saman í tveimur
lierbergjum, höfSu annaS sem svefn-
stofu, en hitt til lestrar. Ekki voru þeir
Bertel þó saman um herbergi nema hálfan
fyrsta vetur Hannesar í Líöfn, því aS í
marz 1881 var hann kominn í herbcrgi
1) Skýrsla Lærða skólans 1879—80, bls. 39.
2) Þjóðskjs.: Árkækur Hins lærða skóla ís-
lands 1877—1882, bls. 89.
3) Norðlingur 17. ágúst 1880 (skv. áætlun
gufuskipa milli Kaupmannahafnar og ís-
lands 1880).
4) Regensens Arkiv: Værelseprotokol 1838—
1881.
nr. 8 á þriSja gangi og átti þar heima
ætiS síSan, meSan hann var á GarSi.1)
Deildi hann herberginu fyrst meS Þór-
halli Bjarnarsyni, síSar biskupi. í septem-
ber 1882 var svo kominn til lians Jón
Jakobsson, síSar landsbókavörSur, og í
marz 1884 fluttist til hans Gísli GuS-
mundsson frá BollastöSum, og var hann
síSastur herbergisfélagi hans á GarSi.
Þátttaka Ilannesar í félagslífi GarS-
stúdenta hófst meS sérstæSum og
skemmtilegum hætti haustiS 1880. Á
þessum árum voru aSalhátíSir á GarSi
rússagildi aS hausti, jólagildi, kattarslag-
ur viS föstuinngang, afmæli linditrésins
snemma í maí og skógarför í júníbyrjun.
Auk þess var margur sollur haldinn og
böll viS og viS. Mestur virSingarmaSur
meSal stúdenta nefndist hringjari og var
kjörinn á almennum fundi GarSbúa. Þeir
rituSu eins konar árbækur eSa annála
liins hclzta, er á dagana dreif meSal
stúdenta, og eru þeir oft í gamansömum
tón. Nefnast þeir Regensens Kirkebog,
Kirkjubók GarSs.
Frá því segir þar, aS vetrinum áSur en
Hannes kom á GarS, héldu nokkrir stúd-
entar soll í herbergjum sínum. Fór þá
sem oft vill verSa, aS hiS fagra kyniS
þykir samkvæmisprýSi. AS þessu sinni
þótti þó nærvera Hafnardætra ekki svo
vænleg til góSs siSgæSis sem sóma myndi
sonum Almae Matris. Dró þetta kvenna-
mál (kvindesagen eins og þaS nefnist í
Regensens Kirkcbog) og fleiri svipaSs
eSlis þann dilk á eftir sér, aS GarSbúum
var sumariS eftir sett ný reglugerS og
nokkru strangari í sumurn greinum. Sama
sumar hafSi veriS haldin í Danmörku
mikil list- og iSnaSarsýning, og var þaS
nú til gamans gert í rússagildinu um
haustiS aS efna til annarrar slíkrar á
1) Regensens Arkiv: Værelseprotokol 1838—
1881 og 1882—1922.