Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1952, Side 8

Andvari - 01.01.1952, Side 8
4 Steingrímur Steinþórsson ANDVARI um. Skútuöldin og síöar togaraútgerð hefst og þá um leið er lagður grunnur að því, að fólk flytjist til sjávarsiðunnar og myndi þar þorp og bæi. Allt þetta og margt fleira jók bjartsýni og vonir um betri hag almenningi til handa. í hugum flestra nútímamanna virðist vera fremur dauft yfir stjómmálum hér á landi þau 30 ár, er líða frá þjóðhátíðinni 1874 og þar til vér fáum innlenda ríkisstjóm árið 1904. Jón Sigurðsson fellur frá í upphafi þessa tímabils. Þótt vér eigum marga merka þingskörunga frá þessum árum, þá er heildarsvipur stjórnmálanna sviplítill. Sjálfstæðisbaráttan, deilur við Dani, halda áfram, en jafnframt verða mikil átök milli íslenzkra stjóm- málamanna um þau mál, og oft, að því er okkur nútímamönn- um virðist, um fremur smávægileg atriði. Þessir hörðu flokka- drættir um sjálfstæðismálið ollu því, að Alþingi sinnti minna en annars hefði verið viðreisn atvinnuvega og öðrum þeim málum, er beint snertu innanlandsmálin. Ástandið var mjög erfitt og hættulegt. Harðindi gengu yfir frá 1880 fram um aldamót. Fjöldi fólks flutti af landi burt til Ameríku. Þeir fólksflutningar vom svo miklir, að á áratugnum 1880—1890 fækkaði fólki hér á landi um því nær 2000 manna, og um aldarfjórðungsskeið frá 1874 fjölgaði þjóðinni því nær ekkert. Öll fólksfjölgunin, eða því sem næst, yfirgaf landið vegna fátæktar og vantrúar á, að hér yrði nokkru sinni hægt að lifa menningarlífi á borð við það, sem fólk var þá farið að dreyma um og áleit að þekktist með öðrum þjóðum. Það, sem einkennir þetta tímabil, er annars vegar rík við- leitni almennings til þess að berjast til betri lífskjara. Menn tóku höndum saman um stofnun félaga til þess að vinna að ræktun jarðar og auknum fiskveiðum, til þess að berjast gegn okri kaup- mannavaldsins og til þess að vinna að ýmsum menningarmálum. Fátt af þessu bar mikinn árangur fyrst í stað. Það þurfti staðfasta hugsjónamenn til þess að beita sér fyrir slíku og trúar á, að úr rættist. Á hinu leytinu flykktist fólk úr landi og harðindi þjök-

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.