Andvari - 01.01.1952, Page 8
4
Steingrímur Steinþórsson
ANDVARI
um. Skútuöldin og síöar togaraútgerð hefst og þá um leið er
lagður grunnur að því, að fólk flytjist til sjávarsiðunnar og myndi
þar þorp og bæi. Allt þetta og margt fleira jók bjartsýni og vonir
um betri hag almenningi til handa.
í hugum flestra nútímamanna virðist vera fremur dauft yfir
stjómmálum hér á landi þau 30 ár, er líða frá þjóðhátíðinni
1874 og þar til vér fáum innlenda ríkisstjóm árið 1904. Jón
Sigurðsson fellur frá í upphafi þessa tímabils. Þótt vér eigum
marga merka þingskörunga frá þessum árum, þá er heildarsvipur
stjórnmálanna sviplítill. Sjálfstæðisbaráttan, deilur við Dani,
halda áfram, en jafnframt verða mikil átök milli íslenzkra stjóm-
málamanna um þau mál, og oft, að því er okkur nútímamönn-
um virðist, um fremur smávægileg atriði. Þessir hörðu flokka-
drættir um sjálfstæðismálið ollu því, að Alþingi sinnti minna en
annars hefði verið viðreisn atvinnuvega og öðrum þeim málum,
er beint snertu innanlandsmálin. Ástandið var mjög erfitt og
hættulegt. Harðindi gengu yfir frá 1880 fram um aldamót. Fjöldi
fólks flutti af landi burt til Ameríku. Þeir fólksflutningar vom
svo miklir, að á áratugnum 1880—1890 fækkaði fólki hér á
landi um því nær 2000 manna, og um aldarfjórðungsskeið frá
1874 fjölgaði þjóðinni því nær ekkert. Öll fólksfjölgunin, eða
því sem næst, yfirgaf landið vegna fátæktar og vantrúar á, að
hér yrði nokkru sinni hægt að lifa menningarlífi á borð við það,
sem fólk var þá farið að dreyma um og áleit að þekktist með
öðrum þjóðum.
Það, sem einkennir þetta tímabil, er annars vegar rík við-
leitni almennings til þess að berjast til betri lífskjara. Menn tóku
höndum saman um stofnun félaga til þess að vinna að ræktun
jarðar og auknum fiskveiðum, til þess að berjast gegn okri kaup-
mannavaldsins og til þess að vinna að ýmsum menningarmálum.
Fátt af þessu bar mikinn árangur fyrst í stað. Það þurfti staðfasta
hugsjónamenn til þess að beita sér fyrir slíku og trúar á, að úr
rættist. Á hinu leytinu flykktist fólk úr landi og harðindi þjök-