Andvari - 01.01.1952, Qupperneq 12
8
Steingrímur Steinþórsson
ANDVARI
jafnan víðfrægt fyrir hve smekklegt og fagurt það var, hvort
sem var sendiherraheimili þeirra í Kaupmannahöfn eða forseta-
heimilið á Bessastöðum. Meðfædd gestrisni þeirra beggja og ljúf-
mennska gerði að verkum, að öllum þótti gott að koma á heimili
þeirra og undu sér þar vel. Frú Georgia, sem ung að árum gekk
Sveini Bjömssyni á hönd, hefur alltaf uppfyllt með ágæturn
hið vandasama húsfreyjusæti á hinu tigna heimili þeirra hjóna.
Frú Georgia, sem var útlend kona, gekk íslandi svo heilhuga
á hönd og offraði þessu nýja föðurlandi sínu svo algjörlega starfs-
kröftum sínum, að hún með löngu ævistarfi hefur skráð nafn sitt
á þann hátt á spjöld sögu vorrar, að hennar mun ávallt verða
minnzt sem einnar af beztu dætmm hinnar íslenzku þjóðar.
Ef vér viljum gera oss sem bezta grein fyrir ævistörfum Sveins
Björnssonar, forseta íslands, áhrifum hans á samtíð sína og
hvað það sé, er oss nú að enduðu ævistarfi hans, ber sérstaklega
að þakka, en sem jafnframt megi benda ungu fólki á til eftir-
breytni, þá tel ég eðlilegast að hverfa aftur til áranna 1910 til
1911. Sveinn Bjömsson er þá þrítugur að aldri og hefur urn nokk-
ur ár gegnt sjálfstæðu starfi í Reykjavík. Faðir hans er þá æðsti
innlendi valdsmaður þjóðarinnar. Hæpið mun þó að álíta, að
það hafi á nokkurn hátt greitt götu Sveins til áhrifa og manna-
forráða. Á þeim ámm var afarheitt í stjómmálum og mörg störf
Björns Jónssonar í ráðherratíð hans vom gagnrýnd harðlega.
Hvað sem réttmæti þeirrar gagnrýni líður, þá er þó margt, er
meiri Ijóma varpar á Björn Jónsson, þann merka mann, en ráð-
herradómur hans. Sveinn er á þessum tímamótum fullþroska
maður, glæsilegur og hugþekkur öllum, er af honum höfðu kynni,
með góða menntun og alhliða hæfileika, í senn framsækinn, en
þó varfærinn. Ungir menn margir treystu honum og vildu gjarn-
an hlíta leiðsögn lians. Varð þess skjótt vart, að framsæknum
mönnum var Ijúft að skipa sér undir merki hans og fylgja hon-
um við framgang ýmissa þjóðnytjamála þá.