Andvari - 01.01.1952, Blaðsíða 24
20
Steingrímur Steinþórsson
ANDVARI
sem væntanlegt forsetasetur. Er ljóst, að forsetahjónin hafa ákveSið
aS búa hiS nýja forsetasetur þannig, aS til sóma gæti veriS
fyrir íslenzka lýSveldiS. Hefur þaS tekist meS ágætum. Forseta-
heimiliS varS í höndum þeirra hjóna tvímælalaust fegursta heimili
þjóSar okkar, laust viS allt tildur og óþarfa íburS, en heimilislegt,
viSkunnanlegt og meS íslenzkum menningarblæ.
Á BessastöSum var efnt til stórbúskapar um leiS og jörSin
var gerS aS forsetasetri. Er þar nú mikill búskapur og aS mörgu
leyti rekinn þannig, aS til fyrirmyndar er. Forsetinn, Sveinn
Björnsson, var mikill vinur landbúnaSar og gerSi sér mjög glögga
grein fyrir því, aS engin þjóS getur veriS sterk og varSveitt menn-
ingararf sinn, nema þróttmikill landbúnaSur sé stundaSur og
þaS á þann hátt, aS fyllilega samrýmist öSrum atvinnugreinum
þjóSfélagsins. Sveinn Björnsson gerSist því ástvinur íslenzkrar
moldar, íslenzkrar ræktunar, og öruggur talsmaSur landbúnaSar
á íslandi. Þetta var í fullu samræmi viS eSli Sveins Bjömssonar
og áhugamál hans frá öndverSu. Hann hóf störf sín í opinberum
málum meS því aS beita sér fyrir ýmsum nausSynlegum framfara-
málum varSandi atvinnuvegi þjóSarinnar. Hann ólst upp í Reykja-
vík og varS þingmaSur höfuSborgarinnar. ÞaS var því aS von-
um, aS störf hins framsækna unga manns beindust þá meir aS
öSru en landbúnaSi, sem hann hefur þekkt minna til þá. En
þegar hinn lífsreyndi maSur er orðinn æðsti valdsmaSur þjóðar
okkar og seztur að á Bessastöðum, hefur hann öðlast djúpan
skilning á mikilvægi landbúnaðarins fyrir þjóð okkar. En frá önd-
verðu hefur Sveinn Björnsson skilið þaS betur en flestir aðrir,
að því aðeins getum vér haldið sjálfstæði voru sem fullvalda
ríki, að hófsemi og hagsýni sé viðhöfS í öllum rekstri og ekki sé
eytt meiru en aflað er. Þetta nefndi forsetinn oft, þegar hann
talaði til þjóðarinnar.
Sveinn Björnsson hafði öðru að sinna um ævina en stunda
ritstörf. Þó liggur nokkuð eftir hann í rituðu máli. Ekki verður
hirt um að telja það nákvæmlega upp hér. Hann gaf út Islands