Andvari - 01.01.1952, Qupperneq 27
andvari
Sveinn Bjömsson
23
Góðir íslendingar!
Ég flyt íslenzku þjóðinni sorgarfregn. Forseti Islands, herra
Sveinn Björnsson, andaðist í Reykjavík klukkan hálffjögur í
nótt.
Forsetinn hafSi fyrir skömmu gengiS undir uppskurS er-
lendis og virtist á góSum batavegi, en að vonum máttfarinn
eftir mikla og hættulega skurðaðgerð.
Þegar ég átti tal við forsetann í fyrradag, glaðan og hress-
an í anda, grunaði mig síst, að sá fundur yrði okkar síðasti,
enda lét hann í ljós vonir um, að þreytan myndi hverfa með
vori og hækkandi sól, svo að hann gæti þá tekið til starfa meS
endumýjuðum kröftum fyrir land sitt og þjóð.
Islenzka þjóðin mun jafnan minnast hins mikilhæfa, góð-
viljaða og hugljúfa forseta síns með virðingu og þökk og
meta að verðleikum störf hans í þágu lands og lýðs, bæði
meðan hann gegndi vandasömu sendiherraembætti um langt
skeið og eins, er hann mótaði og markaði stöðu hins íslenzka
þjóðhöfðingja sem fyrsti forseti hins íslenzka lýðveldis.
I dag sýnir þjóðin samúð sína með því, að störf í skrif-
stofum og verzlunum, hæði hjá einstaklingum og ríkisfyrir-
tækjum, eru felld niður frá hádegi, og hverskonar samkomum
aflýst og skólum lokað.
Flugur vor beinist í dag sérstaklega til forsetafrúarinnar,
Georgíu Björnsson, og bama og annarra vandamanna for-
setahjónanna, með hluttekningarkveðjum.
Vér Islendingar munum ávallt minnast hins fyrsta for-
seta íslenzka lýðveldisins, herra Sveins Bjömssonar, með
miklu þakklæti og óblandinni virðingu. Guð hlessi hann og
alla ástvini hans.
Um kvöldið þennan sama dag, er forsetinn andaðist, fluttu
ráðherrar, formenn stjórnmálaflokka og fleiri forustumenn og
samstarfsmenn forsetans fyrr og síðar, ávörp í útvarpið. Lík for-