Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1952, Page 35

Andvari - 01.01.1952, Page 35
andvari Skúli Magnússon og Nýju innréttingamar 31 hvers vænta a£ þeim fámenna hópi manna, er áttu þess kost að leita sér menntunar erlendis, þótt flestir þeirra yrði að láta sér nægja stutta dvöl við Kaupmannahafnarháskóla við þröng kjör, er leyfðu þeim ekki að kynna sér mikið annað en námsefni sitt, er oftast var tóm guðfræði og varðaði yfirleitt á engan hátt hagnýt efni. Dæmi manna, sem lengra komust og fleiru kynnt- ust, eru undantekningar, sem staðfesta regluna. Má þar til nefna Vísa-Gísla Magnússon, sem vegna upplags síns og víðtækrar hag- nýtrar þekkingar hefði getað orðið mikilhæfur leiðtogi í atvinnu- lífi þjóðarinnar, en varð eins og kunnugt er að lúta í lægra haldi fyrir ofurvaldi einokunarskipulagsins, áhugaleysi stjórnarvalda og kjarkleysi og deyfð landsmanna, er orðnir voru vanabundnir þræl- dómsokinu. Það er auðskilið mál, að þjóð, sem lent hefir í aðkreppu ein- angrunar og efnalegrar niðurníðslu, þvílíkrar sem íslendingar voru í sokknir um miðja 17. öld og urðu enn að sæta langa hríð, réttir ekki hæglega við án áhrifa utan frá. Söguleg rök, minningar um fyrri fremd, geta að vísu orðið slíkri þjóð drjúgur aflvaki. En samtíma dæmi annarra þjóða hljóta samt að hafa dýpst áhrif til hvatningar og eftirbreytni. Öll viðreisnarsaga íslendinga sannar þetta, en sjaldan hefur það blasað jafn ljóslega við allra augum eins og nú, á okkar dögum. Skilyrðin til þess að geta notfært sér reynslu og fordæmi annarra þjóða, er sæta áttu frjálslegri og hollvænlegri stjórnan um atvinnuefni sín, skorti hér að mestu. Einangrunin og einokunin gegndu báðar sama hlutverkinu, enda sambornar systur, og cnn átti löng stund að líða, áður en hér yrði teljandi breyting á. En sú stund hefði samt eflaust lengri orðið, ef eigi hefði neinn til þess geiYt að bjóða ofureflinu birginn og freista hins ýtrasta — í vonlítilli baráttu. Þannig varð starf Vísa- Gísla alls ekki árangurslaust, því auðveldlega má rekja til hans og áhrifa frá honum fyrstu drögin til viðreisnar landinu upp úr miðri 18. öld. Gísli Magnússon var sem kunnugt er tengdafaðir Þórðar biskups Þorlákssonar í Skálholti, er sjálfur hafði framazt víða erlendis, líkt og Gísli, og verður talinn einn liinn gagnmennt- 3

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.