Andvari - 01.01.1952, Síða 44
40
Þorkell Jóhannesson
ANDVARI
sem var hinn ákafasti“. Þannig kemst Horrebow að orði í skýrslu
sinni til stjómarinnar 1751. Nú má sjálfsagt bollaleggja til og
frá um áhrif Horrebows á stofnun innréttinganna. Víst er um
það, að árið 1750—51 dvöldust þeir saman á Bessastöðum, hann
og Skúli, og eigi hefur Horrehow latt stórræðanna, heldur þvert
á móti. Um þetta segir hann ennfremur: „Eftir miklar bollalegg-
ingar og viðræður við mig, er við vorum samtíða á Bessastöðum,
samdi hann frumvarp, er hann sýndi hinum áhrifamestu og ágæt-
ustu löndum sínum, og gazt þeim vel að“. Því næst víkur hann
að Alþingi 1751 og samkomum, sem landfógeti átti þar með þess-
um mönnum og „öðrum sínum landsmönnum, sem höfðu fjár-
magn og áhuga til að hjálpa sínu niðurnídda föðurlandi". Gerðist
þá og það til nýlundu, að „saman var skotið 2 þús. rd. höfuðstól
til að koma upp iðnaðarstofnun og var landfógeta falið að fara
til Kaupmannahafnar til þess að leita þegnsamlegast ýmsra sér-
leyfa og aðstoðar af hans konunglegu hátign", segir Horrebow
ennfremur.
Þessi frásögn frá Alþingi 1751 er í sjálfu sér nógu glögg, það
sem hún nær, en hér þarf þó nokkru við að bæta. Þess var áður
getið, að Skúli hafði áður í skýrslu sinni til stjórnarinnar um
Skagafjarðarsýslu rætt nokkuð um ástand fiskveiða hér. Vorið
1751 fékk hann bréf frá stjóminni um að hann gæfi henni rök-
stutt álit um það, hvað gera ætti og gera þyrfti, til þess að fisk-
veiðar við ísland yrði betur reknar og komið í veg fyrir, að er-
lendar þjóðir fleyttu hér rjómann af, en landsmenn sætu eftir
með leifar einar. Árið 1750 hafði stjórnin veitt Birni Markús-
syni sýslumanni í Skagafirði 200 rd. til kornyrkjutilrauna og nú
kom 300 rd. fjárveiting til vefsmiðju Magnúsar Gíslasonar.
Vafalaust var allt þetta sterk hvöt þeim mönnum, sem saman
komu á Alþingi 1751 til að ræða og ganga frá félagsstofnun til
þess að hrinda ýmsum framfaramálum landsins í framkvæmd, og
átti sjálfsagt líka þátt í því, að starfsemi félagsins var ekki bundin
við ullariðnaðinn einan, þótt hann væri meginþáttur hennar.
Hlutafélag innréttinganna var stofnað á Alþingi 17. júh