Andvari - 01.01.1952, Qupperneq 45
ANDVARI
Skúlí Magnússon og Nýju innréttingamar
41
1751. Voru stofnendur 13 talsins og hlutaféS 1550 rd. í stjórn
voru kosnir Skúli Magnússon, Magnús Gíslason, Brynjólfur sýslu-
maður Sigurðsson og Þorsteinn sýslumaður Magnússon. Fór Skúli
utan um haustið til þess að leggja málefni félagsins fyrir stjóm-
ina, tryggja því fjárhagslegan stuðning hennar og önnur fríð-
indi, sem þurfa þótti. Horrebow fór þá líka utan alfari. Sömdu
þeir báðir, hvor í sínu lagi, greinargerð um ástand landsins og
tillögur um það, hversu bætt yrði kjör landsmanna og atvinnu-
vegum þeirra komið í viðunandi horf. Er greinargerð Horrebows
dags. 13. nóv. en greinargerð Skúla 20. nóv. Þess hefði mátt
vænta, að amtmaðurinn, Pingel, legði hér lið sitt fram, því áður
hafði hann í bréfum til stjórnarinnar talað margt um nauðsyn
framfara hér á landi og var í raun og vem hlynntur umbótum,
en líklega þótti honum Skúli helzti íramgjam og sækja fremur
r;tð til annarra, enda snérist hann gegn málum hans. Kom það
reyndar lítt að sök, þ ví Pingel var í litlu áliti vtra og var levstur
frá starfi árið eftir.
Ef litið er á tillögur þeirra Skúla og Horrebows, kernur glöggt
rarn> með þeim hefur verið hin nánasta samvinna og hafa þeir
reniið sér saman um tillögur allar, þótt að öðm leyti beri skýrslur
Peirra hvers um sig glögg merki höfundar síns. Hér er um að
ræða alhliða framkvæmdir til viðreisnar íslenzkum atvinnuveg-
nin. Hingað skyldi senda danska og norska bændur, til þess að
renna landsmönnum rétt tök á jarðyrkju og kvikfjárrækt, einnig
yrðu tilraunir gerðar um skógrækt. Sjávarútvegur yrði efldur með
jarstyrk til kaupa á þilskipum til fiskveiða á djúpmiðum og flutn-
1Ia8a nieð ströndum fram. Enn fremur yrði verzlunarfélagið skyld-
a Þl að kenna mönnum saltfiskverkun. Komið yrði fótum undir
1 naðarstofnanir og skyldu landsmenn læra að hagnýta sem bezt
ráefni og afurðir landsins. Innleidd yrði hér kúrantmynt til
pess að greiða fyrir viðskiptum innanlands, er vænta mætti að
asn mjög vaxandi, vegna hráefnakaupa iðnaðarstofnananna, kaup-
gjalds o. þ. h.
í
raun og veru er lítið nýtt í þessum tillögum. Flest hafði þetta